Forsíða
UT99:       
FRÉTTIR             
SKRÁNING Á RÁÐSTEFNUNA!


    Að lokinni ráðstefnu

    UT99 - Ráðstefnu um upplýsingatækni í skólastarfi er lokið. Ráðstefnan gekk vel og kom það okkur raunar á óvart hve óhöpp og vandamál voru fátíð. Það féll t.d. ekki niður nema ein málstofa og var það vegna veikinda fyrirlesarans. Það koma okkur einnig á óvart hve tæknileg vandamál voru fátíð miðað við umfangsmikla notkun tæknibúnaðar á ráðstefnunni.

    Þátttaka var afar góð, ráðstefnuna sóttu um 420 gestir og eru þá ótaldir 93 sem fluttu erindi eða tóku til máls í 47 málstofum. Þessi mikli fjöldi ber vott um áhuga og metnað skólafólks á sviði upplýsingatækni og sýnir hve mikil þörf var á því að kalla fólk saman. Það vakti einnig athygli hvað ráðstefnugestir tóku viðfangsefnið alvarlega og hve einbeittir menn voru í fróðleiksleit sinni. Dagskráin var þannig sett upp að lítið hlé var á milli málstofa og ekkert hlé gert fyrir mat eða kaffi. Var hugmyndin sú að fólk myndi taka sér matarhlé um hádegið á tímabilinu frá 11-14 og þannig mætti afstýra þeirri örtröð sem matarhlé hefði skapað í matsölu skólans. Það sem hinsvegar gerðist var að stærstur hluti ráðstefnugesta tók sér ekkert hlé og en sótti málstofur allan daginn. Það var líka tekið eftir því að allar málstofur voru fullsetnar kl. 9 á laugardagsmorguninn.

    Kennslustofa framtíðar var vel sótt báða dagana og lá stöðugur straumur fólks þangað. Mikill og góður undirbúningur lá að baki verkefninu en um 80 kennarar og nemendur tóku þátt í Kennslustofu framtíðar.

    Á sýningu ráðstefnunnar kynntu 18 fyrirtæki og stofnanir þjónustu sína og má reikna með að um 50 manns hafi komið að því starfi. Var það mál manna að sýningin væri fjölbreytt og hæfilega stór.


    Menntamálaráðuneytinu, 1. mars 1999, Pétur Ásgeirsson



    Listi yfir þátttakendur

    Skráðir þátttakendur á UT99 eru 385.

    Listi í stafrófsröð og stofnananröð er kominn hingað á vefinn. Listi yfir 93 fyrirlesara er einnig á vefnum. En óskráður er fjöldi þátttakenda sem mun starfa við "Kennslustofu framtíðar", á kynningum og á sýningarsvæði.

    Ljóst er að fjöldi manns kemur að þeim þáttum ráðstefnunnar og að alls verði á milli 600 - 700 manns í MK í dag og á morgun.

    Menntamálaráðuneytinu, 26. febrúar 1999, Jóna Pálsdóttir




    Kennslustofa KHÍ

    Glæsileg dagskrá verður í kennslustofu sem helguð er Kennaraháskóla Íslands. Þar gefst gestum kostur á að kynnast kennurum og verkefnum sem þeir eru að vinna við.

    Báða ráðstefnudagana verður skipt um kynningu á klukkustunda fresti.

    Þátttakendur fá sundurliðaða dagskrá í kennslustofunni og gefst einnig kostur á að prenta hana út héðan.

    Menntamálaráðuneytinu, 25. febrúar 1999, Jóna Pálsdóttir




    25. febrúar 1999

    Dagskrá "Kennslustofu framtíðar" er komin á vefinn. Stöðug kennsla verður báða ráðstefnudagana. Hún hefst á heila tímanum; kennt verður í hálftíma og síðan gefst góður tími til fyrirspurna í lok hverrar kennslustundar. Ástæða er til að benda á "Þanka" Torfa Hjartarsonar, umsjónarmanns kennslustofunnar.

    Lisi með tilvísun í vefsíður sýningaraðila er kominn hér á vefinn og sjá má að þar verður fjölbreytileiki á ferð.

    Menntamálaráðuneytinu 25. febrúar 1999, Jóna Pálsdóttir




    Dagskrá í prentvænu formi

    Helstu fréttir 23.2. eru að dagskráin er komin í endanlegri mynd, aðgengileg til útprentunar. Þátttakendur fá hana einnig með ráðstefnugögnum við innganginn á föstudaginn.

    Einnig er kominn listi yfir sýningaraðila með tilvísun í vefsíður þeirra.

    Listi yfir 90 fyrirlesara er kominn: http://www.ismennt.is/vefir/ut99/fyrirlesarar.html

    Ný útfærsla á málstofum er væntanleg á morgun.

    Menntamálaráðuneytinu, 23. febrúar 1999
    Jóna Pálsdóttir





    400 manns komnir - skráning 23. febrúar: kr. 1.500

    260 manns hafa nú þegar skráð sig á ráðstefnuna. Fyrirlesarar verða um 80 auk fjölda kennara og nemenda sem koma að "Kennslustofu framtíðar" og sýningarbásunum. Að minnsta kosti 400 manns verða því á ráðstefnunni og hugsanlegt er að færri komist að en vilja.

    Skráningarmet á Menntaskólinn á Akureyri en nú þegar eru 24 skáðir frá þeim skóla. Og ánægjulegt er að frétta að skólinn bauð kennurum flugfar og þátttökugjald á ráðstefnuna.

    Ákveðið hefur verið fresta hækkun á þátttökugjaldi fram yfir þriðjudag. Þeir sem skrá sig 23. febrúar greiða 1.500 inn á ráðstefnuna en eftir það hækkar gjaldið.

    Menntamálaráðuneytinu, 22. febrúar 1999
    Jóna Pálsdóttir




    Þátttökutilkynningar streyma inn

    Eitt aðalmarkmið Skýrslutæknifélags Íslands er að breiða út þekkingu á upplýsingatækni og stuðla að skynsamlegri notkun hennar. Teljum við það ljúfa skyldu, nú sem fyrr, að starfa að þessu markmiði á vettvangi skólamála. Það var mikill heiður fyrir Skýrslutæknifélagið þegar menntamálaráðuneytið bauð okkur til samstarfs um þessa ráðstefnu. Samstarfið hefur verið gott og vonum við að árangurinn beri þess merki.

    Þrátt fyrir að UT99 hafi ekki enn verið auglýst með formlegum hætti er ljóst að ráðstefnan er þegar farin að vekja athygli því fólk er þegar farið að skrá sig í gegnum heimasíðu ráðstefnunar. Strax á fyrsta degi bárust rúmlega fjörutíu þátttökutilkynningar. Staðfesta þessar viðtökur væntingar okkar um að ráðstefnan verði í alla staði athyglisverð.

    Þegar hafa þó nokkrir aðilar pantað sýningarbása og er útlit fyrir að sýningin verði afar fjölbreytt. Í þessum hópi eru skólar, hópar einstaklinga og einkafyrirtæki. Útlit er fyrir að stærstu tölvufyrirtækin verði þarna og kynni sýningargestum hvaða lausnir þau bjóða, bæði hvað varðar vél- og hugbúnað. Má búast við að þarna verði kynntar nýjustu aðferðir við að tölvuvæða skóla.

    Ætlunin er að kynna sem flesta möguleika við að nota upplýsingatækni í skólastarfi. Við teljum að það muni takast.

    17. febrúar 1999
    Svanhildur Jóhannesdóttir
    framkvæmdastjóri Skýrslutæknifélags Íslands




    Í dag, mánudaginn 15. febrúar, er þessi vefur formlega opnaður. Á vefnum er ætlunin að birta allar nauðsynlegar upplýsingar um ráðstefnuna og einnig geta menn þar skráð sig til þátttöku.

    Undirbúningur UT99, ráðstefnu um upplýsingatækni í skólastarfi er nú á lokastigi. Á ráðstefnunni munu um 60 manns taka til máls annaðhvort sem fyrirlesarar eða sem þátttakendur í pallborðsumræðum. Þá munu fyrirtæki og stofnanir verða með bása á sýningu og má búast við að ekki færri en 30 manns komi að því verki. Unnið er að því að skipuleggja Kennslustofu framtíðar og munu margir kennarar og nemendur taka þátt í því starfi. Að lokum munu fjölmargir vinna við skipulag og framkvæmdaatriði, tæknimál, dyravörslu, matreiðslu o.s.fv. Af þessari upptalningu má sjá að ráðstefnan verður fjölmenn alveg burtséð frá fjölda ráðstefnugesta.

    Í fréttapistlunum sem þessum verða birtar nýjustu fréttir af undirbúningi og vísað á nýjungar á vefnum. Hér verður einnig sagt frá því þegar stórir hópar skrá sig á ráðstefnuna t.d. má nú þegar segja frá því að skólastjóri Varmalandsskóla, sem er þróunarskóli í upplýsingatækni, tjáði mér að 20 manns frá skólanum muni sækja ráðstefnuna. Í Varmalandsskóla starfa 13 kennarar og þarf því ekki að efast um áhuga Stafholtstungnamanna.

    Menntamálaráðuneytinu, 15.2.1999, Pétur Ásgeirsson, formaður verkefnisstjórnar.