Forsíða
ÁVARP MENNTA-
              MÁLARÁÐHERRA
SKRÁNING Á RÁÐSTEFNUNA!


    Stefna um notkun upplýsingatækni á sviði mennta og menningar var birt fyrir þremur árum í ritinu Í krafti upplýsinga. Mikið hefur áunnist síðan eins og kynnt er á ráðstefnunni UT99. Hefur verið ánægjulegt, hve mikill áhugi er víða á því að ná góðum árangri á þessu sviði. Margar erlendar þjóðir líta öfundaraugum til okkar, þegar þær kynnast því, hve upplýsingatæknin setur víða svip á íslenskt skólakerfi.

    Hin góðu viðbrögð við stefnunni í skólum og á öðrum vettvangi hefur meðal annars leitt til þess, að á fjárlögum ársins 1999 er í fyrsta sinni sérstök fjárveiting til málaflokksins. Hún nemur 135 m.kr. og rennur m.a. til menntunar kennara á sviði upplýsingatækni, þróunar kennsluhugbúnaðar, tækjakaupa og þróunarskóla á sviði upplýsingatækni. Ráðstefna sú sem hér er kynnt er liður í framkvæmd stefnunnar. Er brýnt að allir, sem að þessum málum koma, fái tækifæri til að kynnast og bera saman bækur sínar.

    Menntamálaráðuneytið hefur undanfarin ár átt ágætt samstarf við Skýrslutæknifélag Íslands og að þessu sinni stöndum við sameiginlega að þessari ráðstefnu um upplýsingatækni í skólastarfi. Vil þakka áhuga félagsins á því, að ráðstefnan takist sem best.

    Ég hvet skólafólk til að sækja ráðstefnuna og taka virkan þátt í starfi hennar.

    Björn Bjarnason,
    menntamálaráðherra

    15.02.1999