|
Fréttir:
Mikil
þátttaka er á UT2001
Miðvikudaginn
7. mars hafa yfir 600 manns skráð sig. Flestir eru
úr Verslunarskóla Íslands þaðan
eru um 40 manns skráðir.
Nokkrir tugir kennarar koma úr fleiri skólum og
frá nokkrum smærri skólum eins og Varmalandsskóla
koma um það bil allir starfandi kennarar og stjórnendur.
UT2001 er orðin stærri en UT99 og er í reynd
ein stærsta ráðstefna sem haldin hefur verið
á Íslandi
Dags.
7. mars 2001
Kasmírfréttir

Nemendur úr
áttunda og níunda bekk Varmalandsskóla munu
gefa út fréttavefinn Kasmírfréttir
á UT2001. Nemendurnir munu skrifa fréttir, taka
viðtöl við gesti og fyrirlesara og taka myndir af
ráðstefnunni og setja á fréttavefinn.
Nemendurnir munu hafa aðstöðu á bókasafni
Borgarholtsskóla, þar sem ráðstefnugestir
geta fylgst með vinnu þeirra.
Dags.
2. mars 2001
Tónlistargjörningur
eitt af atriðum setningarinnar
Við setningur
ráðstefnunnar munu tónskáldin Hilmar
Þórðarson og Ríkharður H. Friðriksson
flytja tónlistargjörning með Lightning, hljóðfærði
sem nemur innrauðan geisla og breytir honum í tónlist.
Hilmar og Ríkharður hafa veitt Tónveri Tónlistarskóla
Kópavogs forstöðu frá upphafi en það
var stofnað árið 1995.
Ákveðið var að bjóða upp á
nám þar sem tölvutónlistin var aðalfag
eða eins og segir í upphaflegri námslýsingu
Ætlunin er að úr þessu verði
til ný tegund íslenskra tónlistarmanna, tölvutónlistarmenn,
með tölvu sem aðal- hljóðfæri"...".
Þetta var algjör nýjung við tónlistarkennslu
hér á landi en reynslan hefur sýnt að
bráð nauðsyn var á, því slíkar
hafa viðtökurnar verið.
Strax var
ljóst að tilkoma tónversins opnaði margvíslega
möguleika og því hefur á það
verið lögð mikil áhersla að leggja sitt
af mörkum á vogaskálar íslenskrar menningar.
Má þar nefna verkefni til varðveislu íslensk
tónlistararfs, með endurvinnslu og varðveislu gamalla
upptaka, þátttöku í flutningi á
íslenskri tónlist og með þátttöku
og skipulagningu á ART2000 fyrstu alþjóðlegu
tölvutónlistarhátíðinni á
Íslandi sem nýlega var útnefndur tónlistarviðburður
ársins hjá Dagblaðinu.
Með flutningi
tónversins í nýtt og stórglæsilegt
Tónlistarhús Kópavogs hafa opnast nýjir
möguleikar til tónlistarflutnings sem áður
voru óþekktir hér á landi.
Dags.
21. febrúar 2001
Aðalfyrirlesari
ráðstefnunnar er dr.Patricia L. Rogers.
Hún starfar
nú á Íslandi sem Fulbright kennari á
sviði upplýsinga-tækni við Kennaraháskóla
Íslands. Patricia L. Rogers lauk doktorsnámi frá
University of Minnesota þar sem áhersla er lögð
á "Instructional Systems and Technology", tölvur
og nýtingu þeirra í námi. Í
erindi sínu "eLearning: The Forced Evolution of Higher
Education" mun hún fjalla um þær miklu
breytingar sem orðið hafa á háskólamenntun
vegna áhrifa upplýsinga- og samskiptatækni.
Hugtakið "eLearning" á við allt nám
sem er tæknistutt.
Rætt verður
um kröfur markaðarins, gæði náms, aðgang
að námi og ráðstöfunarfé til
byggingarmála í samanburði við það
fjármagn sem veitt er til dreifmenntunar.
Dags.
19. febrúar 2001
|