Með átakinu verður mun auðveldara en áður að komast að í framhaldsskóla eftir námshlé. Haustið 2011 munu skólarnir taka inn alla umsækjendur undir 25 ára aldrei sem uppfylla skilyrði, ásamt eldri umsækjendum sem hafa lokið raunfærnimati vorið 2011. Þannig gefast frábær tækifæri til að ljúka námi eða bæta við kunnáttu á ýmsum sviðum sem nýtast vel á vinnumarkaðnum.
Sköpun
Skapandi greinar verða sífellt mikilvægari í atvinnulífinu og nú eru ársverk í þeim geira nærri 10.000. Ný hugverk eru verðmæti, störfin skemmtileg og þörfin fyrir skapandi starfskrafta mun halda áfram að aukast. Námsráðgjafar og skólar munu kynna námsleiðir og nýja möguleika á þessu sviði.
Tækni
Á næstu árum er áætlað að fjöldi nýrra starfa skapist ár hvert í verk- og tæknigeiranum. Aukin þörf fyrir starfsfólk með menntun og hæfni í verklegum greinum skapar spennandi tækifæri fyrir alla sem vilja bæta við grunnmenntun sína og bæta stöðu sína á vinnumarkaði. Fjölmörg námstækifæri á þessu sviði verða kynnt á námsstefnunni.
Umönnun
Með hækkandi meðalaldri og sífellt betri aðbúnaði fjölgar umönnunarstörfum ár frá ári. Eftirspurn eftir menntuðu starfsfólki er mikil og lílklegt er að hún fari vaxandi næstu ár. Störf í þessum geira eru fjölbreytt og tækifærin mörg. Námsmöguleikar á framhalds- og háskólastigi verða kynntir auk ýmissa símenntunartækifæra.