Svarið hefur hjálpað:
248
Hjálpaði svarið þér?
Já
hvenær fæ ég svar hvort ég hafi komist inn í skólann eða ekki?
Svör um skólavist berast nemendur eftir miðjan júní
2011/3/25
Svarið hefur hjálpað:
87
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ef maður kemst inn í báða skólan sem maður valdi, fær maður þá bréf frá þeim báðum?
Nei, eingöngu þeim sem þú valdir númer eitt því það er sá skóli sem þú vildir helst fara í samkvæmt umsókn þinni
2011/2/18
Svarið hefur hjálpað:
64
Hjálpaði svarið þér?
Já
Námsráðgjafinn í skólanum mínum var að segja að núna geti framhaldsskólarnir ekki vitað hvort maður er að sækja um þá í fyrsta eða öðru vali. Er þetta rétt?
Já, þetta er rétt hjá þér. Framhaldsskólarnir fá lista yfir alla sem um þá sækja og raða umsækjendum í þá röð sem þeir vilja fá þá inn óháð vali eitt eða tvö. Tölvukerfið sér að þessu loknu um að fylla fyrst upp í 40% lausra plássa úr forgangsskólun og síðan upp í þau pláss sem eftir eru. Ef nemandinn er samþykktur í báðum þeim skólum sem hann valdi þá fer umsókn hans sjálfkrafa til þess skóla sem hann valdi númer eitt.
2011/2/18
Svarið hefur hjálpað:
48
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég sótti um skóla í forinnrituninni en gleymdi að sækja um aftur þegar ég var búin að fá einkunnirnar mínar. Gildir umsóknin mín úr forinnritunni eða er ég ekki með neina umsókn?
Ef þú hefur sótt um í forinnrituninni þá gildir sú umsókn.
2011/2/18
Svarið hefur hjálpað:
29
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er heimilt að sleppa því að halda sameiginlegan fund með skólaráði og stjórn nemendafélags a.m.k. einu sinni ári eins og kveðið er á um í 8. gr. grunnskólalaga nr. 91/ 2008?
Það er túlkun ráðuneytisins að ekki sé heimilt skv. lögunum að sleppa árlegum fundi skólaráðs með stjórn nemendafélagsins.
2010/5/04
Svarið hefur hjálpað:
22
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég sótti um tvo skóla sem eru ekki forgangsskólarnir mínir. Hvað gerist ef ég kemst ekki inn í þá? Fer þá umsóknin mín sjálfkrafa í forgangsskólann minn og kemst ég þá inn þar?
Það er ekki þannig að þú getir valið tvo skóla sem eru ekki forgangsskólar og treyst á að ef þú færð neitun í þeim þá komist þú inn í þinn forgangsskóla. Ef umsækjandi kemst ekki inn í þá skóla sem hann valdi þá fer umsóknin til mennta- og menningarmálaráðuneytisins þar sem unnið verður að því að finna pláss fyrir viðkomandi. Langflestir þeirra sem hafa valið raunhæfa kosti í vali númer eitt og tvö, miðað við gengi (einkunnir ) úr 10. bekk komast inn í annanhvort þann skóla sem þeir völdu. Hafir þú gert það skaltu ekki hafa áhyggjur af þessu.
2011/2/18
Svarið hefur hjálpað:
18
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvenær fer fram forinnritun fyrir haustönn 2011 í framhaldsskóla?
Forinnritun fyrir þá sem eru að útskrifast úr 10.bekk núna í vor fer fram dagana 21. mars - 1. apríl 2011.
2011/2/21
Svarið hefur hjálpað:
16
Hjálpaði svarið þér?
Já
Geta framhaldsskólar sett ákveðin inntökuskilyrði?
Í lögum um framhaldsskóla, 32. gr., segir að skólinn beri ábyrgð á innritun nemenda en jafnframt segir í sömu grein að í samningi ráðuneytis og skóla, 44. gr., skuli kveða á um skyldur einstakra framhaldsskóla við innritun nemenda og þær forsendur sem skóli leggur til grundvallar innritun nemenda. Ráðherra getur auk þess sett sérstök fyrirmæli um innritun í reglugerð. Þetta þýðir að einstaka skólar geti ekki einhliða sett skilyrði fyrir innritun nemenda og að skilyrðin séu háð samkomulagi við ráðuneytið.
2010/5/31
Svarið hefur hjálpað:
14
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég útskrifaðist nú á þriðjudaginn með mjög fínar einkunnir.
Náði yfir 8 á öllu nema í stærðfræði en þar fékk ég 4.5.
Svo stendur í inntökuskilyrðum brautarinnar sem ég sótti um í að það þyrfti minnst 5 í stærðfræði. Er engin möguleiki að fá undantekningu því ég er með 8.3 í meðaleinkunn fyrir utan stærðfræðina?
Það er best fyrir þig að tala við skólann sem þú ert að sækja um í varðandi þetta. Það er misjafnt eftir skólum hvort þeir eru með svokallaða núll áfanga eða ekki sem þú þyrftir í raun að taka í því fagi sem þú fékkst 4,5 í.
2011/2/18
Svarið hefur hjálpað:
13
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvar getur maður séð tölurnar úr forinnrituninni?
Tölur úr forinnritun birtast á menntagatt.is á allra næstu dögum
2011/4/26
Svarið hefur hjálpað:
11
Hjálpaði svarið þér?
Já
Námsráðgjafinn í skólanum mínum talaði um að það væri hægt að senda inn mynd og meðmæli frá kennurum með umsókn, hvernig virkar það?
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
10
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvenær hefjast flestir framhaldsskólar i haust ?
Það er eitthvað misjafnt eftir skólum og því best að leita upplýsinga um það hjá skólunum sjálfum. Venjan hefur verið sú að framhaldsskólarnir hefjast í kringum 20. ágúst
2011/4/26
Svarið hefur hjálpað:
9
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er hægt að breyta og endursenda umsókn sem maður afturkallar?
Já það er hægt. Ef þú ætlar að breyta þá verður þú að afturkalla umsóknina fyrst. Ég mæli með því að þú gerir það sem fyrst áður en skólarnir fara að taka umsóknirnar til sín.
2011/4/21
Svarið hefur hjálpað:
8
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvort skiptir máli fyrir innritun í framhaldskóla hvar þú býrð eða úr hvaða skóla þú útskrifast ?
Landið er eitt lögsagnarumdæmi svo þú getur sótt um hvaða framhaldsskóla sem er óháð búsetu eða hvaða skóla þú útskrifast frá. Búseta eða skóli skiptir ekki máli en ef þú ert að vísa til forgangsreglunnar þá tengist hún þeim skóla sem þú útskrifast úr, sjá upplýsingar á vefslóðinni: http://menntagatt.is/forgangur-ad-skolavist/ og einnig er hægt að sjá lista yfir forgangsskóla á vefslóðinni: http://menntagatt.is/forgangsskolar/.
Framhaldsskólar eiga að bjóða að lágmarki 40% nemenda úr ákveðnum skólum forgang í skólann en einkunnir nemenda ráða eftir sem áður hvort umsækjandi fær skólavist.
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
7
Hjálpaði svarið þér?
Já
þegar maður er að velja skóla til að sækja um er dálkur um norðurlandamál. á maður að velja það sem ég hef verið að læra eða er bara að vera að spurja hvaða mál ég vilt læra í framhaldsskólanum?
Þú átt að velja það sem þú hefur verið að læra í grunnskólanum
2011/4/01
Svarið hefur hjálpað:
7
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvernig virkar það að taka sér ársfrí í menntaskóla ?
Ég er að klára 10.bekk núna og mig langar að taka mér ársfrí, en svo þegar ég sæki um á næsta ári verður einhver skóli að taka við mér ? af því að ég er undir átján ára
Þú átt rétt á skólavist fram að 18 ára aldri sem þýðir að komist þú ekki inn í þá skóla sem þú velur þér sér ráðuneytið um að finna þér pláss. Þú ert engu að síður í forgangi nú þegar þú ert að ljúka 10. bekk og því meiri líkur á að þú komist inn í þann skóla sem þú óskar eftir
2011/6/06
Svarið hefur hjálpað:
7
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvað þarf hátt til að komast inn í Versló , ég er með 9 en ég þori ekki að sækja um því að það þarf svo hátt !
Ef þú ert með níu í meðaleinkunn úr þeim fögum sem Verslunarskólinn tekur til grundvallar í sinni innritun þá hlýtur þér nú að vera óhætt að sækja um. Víst er það svo að ásókn í skólann er mikil en gleymdu því ekki að níu í meðaleinkunn er frábær árangur. Um að gera að sækja um þann skóla sem þig langar mest í og setja svo heimaskólann í annað val sé hann annar en sá sem þú velur í fyrsta val
2011/6/08
Svarið hefur hjálpað:
5
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ef ég sæki um í tvo skóla og kemst í þann sem ég setti í fyrsta sæti en myndi svo ákveða að fara í þann sem ég valdi númer 2, hvernig myndi ég þá breyta því þannig ég væri ekki innrituð í skólan sem ég valdi í fyrsta sæti heldur þann sem ég setti í annað sæt?
Þú getur ekki breytt því þegar umsóknin þín hefur verið afgreidd. Þú þarft því að vera viss um að sá skóli sem þú setur í val nr. 1 sé sá skóli sem þú vilt helst fara í. En er nægur tími til að hugsa sig um. Innritun þeirra sem eru að útskrifast úr 10. bekk lýkur ekki fyrr en 9. júní.
2011/5/02
Svarið hefur hjálpað:
5
Hjálpaði svarið þér?
Já
Námsráðgjafinn í skólanum mínum talaði um að það væri hægt að senda inn mynd og meðmæli frá kennurum með umsókn, hvernig virkar það?
Í umsóknarforminu þá hengir þú mynd og önnur skjöl við umsóknina.
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
5
Hjálpaði svarið þér?
Já
Sjá framhaldsskólarnir sundurliðun á ástundunareinkunninni ? Þ.e.a.s. fjölda leyfa, fjarvist seinkomna og slíkt, eða sjá þeir bara einkunnina sjálfa ?
Yfirleitt kemur inn einkunn fyrir mætingu sem er ekki sundurliðuð. Það er þó undir grunnskólanum komið hvernig hann sendir inn einkunn fyrir mætingu.
2011/4/15
Svarið hefur hjálpað:
5
Hjálpaði svarið þér?
Já
Skiptir það máli að sækja um menntaskóla sem fyrst ? Eru meiri líkur á að komast inn ef ég hefði t.d. sent inn umsókn 21.mars en 1.apríl eða breytir það engu máli ?
Nei það skiptir ekki máli hvenær þú sækir um svo lengi sem umsóknin þín hefur komið inn fyrir 9. júní nk.
2011/4/01
Svarið hefur hjálpað:
4
Hjálpaði svarið þér?
Já
Góðan daginn!
Er möguleiki að einkunnir hafi getað víxlast? Er hægt að sjá hvort réttar einkunnir hafi borist þeim skólum sem sótt var um í?
Ég hef ekki orðið vör við að einkunnir hafi víxlast. Grunnskólarnir sjá um að skila þessu inn í INNU og það hefur gengið vel. Eru einhverjar sérstakar ástæður fyrir því að þú hefur áhyggjur af þessu?
2011/6/19
Svarið hefur hjálpað:
4
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvenar byrja skólarnir að svara umsóknum? Svara þeir eitthvað fyrr þeim sem eru ekki nýnemar?
Umsóknarfrestur fyrir þá sem eru ekki nýnemar er til 31.maí 2011. Ég geri ráð fyrir að skólarnir byrji eftir þann tíma að afgreiða sínar umsóknir. Þeir skólar sem ekki hafa náð að fylla sín pláss sbr. sumir skólar á landsbyggðinni geta væntanlega svarað sínum nemendum eitthvað fyrr. Best er að hafa beint samband við þann skóla sem þú ert að sækja um í til að fá nánari upplýsingar um þessi mál.
2011/5/02
Svarið hefur hjálpað:
3
Hjálpaði svarið þér?
Já
Var að pæla ég fékk semsagt samþykkt í skóla sem ég sótti um og það stendur samþykkt, í bið. Hvað þýðir þá þetta í bið. Er ég þá á varalista eða komst ég inn?
Það þýðir væntanlega að þú hefur komist inn. Mæli þó með því að þú hafir samband við viðkomandi skóla símleiðis til að fá þetta staðfest.
2011/6/02
Svarið hefur hjálpað:
3
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvenær opnar fyrir innritanir í húsgagnasmíðina ? (fyrir haustönn 2011) Ég er 33 ára.
Innritun hefst 4. apríl fyrir þá sem eldri eru (þe. ekki úr 10. bekk) og stendur til 31. maí.
Einstakir framhaldsskólar eru þó með aðrar dagsetningar og þú átt að geta séð nánari upplýsingar um það á vefsíðum skólanna eða hringt í þá til að spyrja.
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
3
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvað geri ég ef ég fékk höfnun í báðum skólunum sem ég sótti um ? get ég reynt að komast inn einhvestaðar annastaðar ? eða er þá bara enginn skóli fyrir mig þessa önn ?r við hverng get ég talað til þess að komast inn i einhvern skóla þessa önn ?
Umsóknir 24 ára og yngri sem fá hafnað í aðal og varaskóla verða sendar til mennta og menningarmálaráðuneytisins í lok júní þar sem unnið verður að því að finna skólapláss fyrir viðkomandi
2011/6/09
Svarið hefur hjálpað:
3
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég var að skrifa mína umsókn og ég hef verið í framhaldsskóla í 2 ár. Var að sækja um skóla í bænum er ekki annars í lagi að ég sendi mína ? Er ekki innritun byrjuð fyrri eldri nemendur ?
Innritun fyrir eldri nemenda er hafin og því í góðu lagi fyrir þig að senda inn umsókn
2011/4/26
Svarið hefur hjálpað:
3
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er einungis hægt að senda út eina umsókn?
Já umsækjandi getur eingöngu haft eina umsókn í gildi. Í umsókninni er hægt að velja um tvo skóla.
2011/4/20
Svarið hefur hjálpað:
2
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er leyfilegt að senda niðurstöður úr samræmdu prófunum með umsókninni í framhaldsskóla og ef svo er, hvernig er það gert?
Ef þú hefur sótt um áður í framhaldsskóla þá eru samræmdu prófs einkunnir komnar inn í kerfið.
2011/4/01
Svarið hefur hjálpað:
2
Hjálpaði svarið þér?
Já
Mig langar að skipta um skóla á haustönn. Er einhver möguleiki fyrir mig að komast að? Hafa nýnemar ekki allan forgang?
Nýnemar eru í forgangshópi en það er alltaf möguleiki á að þú getir fengið þig flutta(n) um skóla. Það eru meiri líkur á að þú fáir inni í þeim skóla sem þú sækir um í ef þú ert með góða skólasókn og sýnir góðan árangur í náminu sem þú ert núna í.
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
2
Hjálpaði svarið þér?
Já
hvar inná þessari síðu sjáum við tölurnar úr forinnrituninni 2011 ???
http://menntagatt.is/toluleg-samantekt/
2011/6/06
Svarið hefur hjálpað:
2
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég er núna á 1.ári í menntaskóla og ætla mér að skipta yfir í annan skóla á næstu önn. Sá skóli sem mér langar í er með bekkjarkerfi en ég er núna í áfangakerfi og mér vanntar alveg nokkra áfanga uppá til að geta verið búin með það sama og krakkarnir sem eru í skólanum sem mér langar í. Get ég þá sótt um og ef ég kemst inn í skólann, tekið þá aftur 1. ár??
Því miður get ég ekki svarað þessu. Þú verður að hafa samband við þann skóla sem þú ætlar að sækja um í til þess að fá svör við þessu.
2011/3/28
Svarið hefur hjálpað:
2
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ef ég er í Seljaskóla hvaða skóla get ég sótt um
Þú getur sótt um hvaða framhaldsskóla sem er. Þú þarft að velja þér skóla og braut sem þú telur að henti þínu áhugasviði og þig langar í. Þú þarft einnig að velja braut út frá því hver námsárangur þinn er. Þú getur séð hver inntökuskilyrðin eru á vefsíðum framhaldsskólanna.
Þú átt forgang í Fjölbrautaskólann í Breiðholti.
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
2
Hjálpaði svarið þér?
Já
hvenær fær maður svar hvort maður hafi komist inn, fyrir vorönn 2012?
Það er eitthvað misjafnt eftir skólum en reiknað er með að almennt séu komin svör um miðjan desember
2011/11/24
Svarið hefur hjálpað:
2
Hjálpaði svarið þér?
Já
Mig langar að skipta um skóla eftir jól, sér skólinn sem ég sæki um bara eikunnirnar mínar úr 10. bekk eða sér hann líka einkunnirnar mínar úr menntaskóla?
Skólinn sem þú sækir um í sér allar þær einkunnir sem eru inni á INNU. Sennilegt er að þegar umsókn þín berst skólanum þá sjáist bara einkunnirnar þínar úr 10. bekk og þau fög sem þú ert skráð(ur) í núna í menntaskóla þar sem prófum verður ekki lokið þegar umsóknartímabilinu lýkur. Þegar síðan einkunnir úr menntaskólanum liggja fyrir þá verða þær aðgengilegar þeim skóla sem þú hefur sótt um í.
2011/10/30
Svarið hefur hjálpað:
2
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég er í 10 bekk og ég sótti um framhaldsskóla 16. mars því kennarinn sagði að þá mætti byrja að sækja um, en í dag sá ég á forsíðunni að það eru meiri líkur fyrir 10. bekkingana að komast inn í skólana sem þau völdu ef þau sækja um 21.mars-1. apríl.....er hægt að eyða umsóknina og skrá sig inn aftur?
Þú getur farið inn í umsóknina og breytt henni. Það skiptir ekki máli hvort þú fylltir hana út fyrir 21. mars eða ekki, þe. ef þú gast þá valið þá skóla sem þú ætlar þér að sækja um skólavist í. Þú minnkar ekki líkurnar á að komast inn í skólann þó þú hafir fyllt út umsóknina áður en formleg forinnritun hófst.
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
2
Hjálpaði svarið þér?
Já
ég var að spá , er símat í Borgó?
Sennilega er símat í einhverjum áföngum í Borgarholtsskóla en hringdu í skólann þeir geta best svarað þessari spurningu
2011/4/10
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ef umsóknin mans ef i vinnslu hvenar fær maður loka svar ?
Það er miðað við að allir þeir sem eru að ljúka grunnskóla nú í vor verði búnir að fá svar 27. júní um skólavist.
2011/6/09
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ef ég er að fara á félagsfræðibraut í áfangaskóla gæti ég þá skipt um skóla á næstu önn og fengið hina önnina metna að fullu og komist inn í hvaða menntaskóla sem ég sæki um (ef ég hef nógu góðar einkunnir)?
Sá skóli sem þú ákveður að fara í (skipta yfir í) verður að meta það
2011/7/05
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ef maður smellir á hnappinn forgangsskóli þá kemur lögheimili nemanda skv. þjóðskrá. Nú var búið að segja mér að það skipti ekki máli hvar lögheimili nemanda er hvort hann fari í forgang eða ekki, heldur væri farið eftir því úr hvaða skóla hann útskrifast. Hvers vegna stendur ekki þá þarna nafnið á skólanum sem nemandi var að útskrifast úr? Hvers vegna er verið að taka fram hvaða lögheimili nemandi hefur skv. þjóðskrá? Lögheimilið kemur hvort sem er fram á forsíðu. Getur nemandi bara flutt í næsta hús við skólann og þá allt í einu verið kominn í forgang þegar hann breytir lögheimili sínu?
Listi yfir forgangsskóla er á menntagatt.is og þar má sjá hvaða forgangsskólar fylgja hverjum grunnskóla fyrir sig. Forgangsskóli fer algerlega eftir þeim grunnskóla sem viðkomandi útskrifast úr en ekki lögheimili. Lögheimili umsækjanda skiptir því ekki máli hvað varðar forgang hans í framhaldsskóla.
2011/6/11
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ef maður býr Erlendis og ætlar að fara í menntaskóla á íslandi, hvar sendir maður inn umsókn og svoleiðis?
Þú sækir um á auglýstum umsóknartíma á menntagatt.is
Innritun á vorönn fer fram í nóvember. Ef þú hefur verið í skóla erlendis þá verður þú að passa að senda einkunnir þínar til þeirra skóla sem þú sækir um í ef þú ætlar að fá eitthvað metið á milli skóla
2011/9/18
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég var að skoða umsókn dóttur minnar. Þar hefur hún valið 2 skóla. Hjá skólanum sem hún valdi í 2. val stendur rauðum stöfum: Athugið að velja þarf Norðurlandamál og þriðja mál. Er þá umsóknin eitthvað gölluð eða er þetta svona hjá öllum eftir að búið er að sækja um. Nú kom það alveg rétt út sem ég fékk á tölvupósti frá innritun en ég vil bara vera viss því þetta er hennar forgangsskóli.
Ef dóttir þín hefur ekki valið sér þriðja tungumál eða norðurlandamál getur hún gert það eftir að hún innritast í þann skóla sem hún valdi sér. Þetta hefur ekki áhrif á það hvort hún kemst inn eða ekki.
2011/6/11
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Fá skólarnir sem maður sókti um sendar aðeins lokaeinkunnirnar eða fá þeir líka sendar prófs og skólaeinkunnirnar?
Skólarnir fá senda lokaeinkunn nemenda úr 10. bekk
2011/6/06
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
hvenar á að sækja um skolann sjálfann ekki forinritun
Þú sækir um þá skóla sem þú vilt fara í núna í forinnritun. Umsóknin þín þar gildir sem lokaumsókn ef þú breytir henni ekki. En þú getur breytt umsókninni þinni fram til 9. júní sem er jafnframt síðasti dagurinn til að sækja um skóla fyrir haustönn 2011
2011/3/23
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er mögulegt að senda inn umsókn núna í FS ? Eru einhverjar líkur að maður kæmist inn svona seint :/ ?
Það er því miður búið að loka fyrir innritun og flest allir skólar búnir að fylla sín pláss
2011/7/05
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Kæri viðtakandi,
Dóttir mín sótti um í Borgarholtsskóla vegna aukahjálpar sem hún þarf og FB .bíður ekki upp á þessa aðstoð lengur hún er með smá greyningu ,hvað getum við gert til að hún komist til ykkar og fái þá hjálp sem hún þarf t,d sérkennslu í sumu.Hún heitir Dagbjört Elísa Karlsdóttir kt hennar er 1409953209 við erum að biðja um íbúðarfluttning til Grafarvogs.Með fyrir fram þökk
Elín D.Elíasdóttir 8496778 - 7756717 p.s ég er með greiðslu seðill sem á að borga núna 25 julí 2011 ef eg bið eftir ykkar svari og borga ekki FB þá líta þeir á að hún sé hætt við ? barnið mitt er mun betur sett hjá ykkur sjá gögn hennar takk fyrir.
Ég hringi í þig
2011/7/09
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég var að ljúka við grunnskóla og komst inní menntaskólann sem ég valdi, en eg er að pæla í því að taka mér ársfrí, þegar ég sæki um á næsta ári er líklegt að ég komist inn í sama skólann aftur ?
þeir sem eru að ljúka grunnskóla eru í forgangi með að komast í framhaldsskóla og svo verður einnig eftir ár. Það er því erfitt að svara því hvort þú myndir komast í sama framhaldsskóla og þú hefur fengið inni í núna eftir eitt ár fer allt eftir því hversu mikil aðsókn verður inn í þann skóla þegar þú sækir um næst.
2011/6/25
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
ef maður hefur verið samþykktur en vill hætta við hvernig snýr maður sér ??
Ef þú ert hættur við þá endilega láttu þann skóla sem þú fékkst inni í vita svo einhver geti nýtt plássið þitt.
2011/7/05
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvar finnur maður innkaupalista skólanna og hvaða greinar maður tekur ?
Ég geri ráð fyrir því að innkaupalistar fyrir skólana komi inn á heimasíður þeirra þegar nær dregur og þú veist hvaða greinar þú tekur um leið og þú færð stundatöfluna afhenta á skólasetningu :)
2011/7/06
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
ég sótti um FS í fyrsta sæti og FB í öðru, ég er að flytja í breiðholtið og vil þá helst fara í FB, get ég breytt umsókninni?
Það er því miður orðið of seint að breyta umsókninni og ég dreg mjög í efa að þú komist inn í FB næsta haust vegna þess að skólinn hefur fyllt öll sín pláss.
2011/6/23
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég er fæddur 1992
Hvenær get ég búist við því að ég fái svar við umsókn minni? Takk fyrir :)
Sæll
Reiknað er með að allir verði búnir að fá svar fyrir lok júní. Best er að fylgjast með á menntagatt.is því ef til vill eru einhverjir skólar fyrr til að svara en aðrir
2012/5/22
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
hvar get ég sé hvort ég hafi komist í skólann sem ég sótt um?
Þú getur farið inn ámenntagatt.is klukkan 11 í fyrramálið og þá sérðu þetta
2011/6/23
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Nú stendur að skólinn sem ég setti í 1.val hafi samþykkt umsókn mína. Hvernig veit ég þá hvort skólinn sem ég setti í 2. val hafi samþykkt mig. Ef manni er hafnað af hinum skólanum stendur þá ekkert?
Ef þú hefur komist inn í skólann sem þú valdir númer eitt þá afgreiðir hinn skólinn umsóknina á þann hátt að hún hafi verið samþ. í öðrum skóla og þú færð ekki frekari upplýsingar um það.
2011/6/24
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
ég er 18 ára, árið 2009 byrjaði ég í fb og ég var í honum í 1 viku síðan kom smá uppá hjá fjöldskylduni þanig ég hætti að mætta í skólan og lét ekkert vita að ég var hættur, þanig það kom út eins og ég féll í öllu hvernig gett strokið það út að ég hafi fallið og breytt þv´vi í að ég hafi hætt?
Þú verður að ræða þetta við skólann. Hafir þú ekki sagt þig úr náminu þá verður birtingin inn á INNU þannig að þú hafir fallið í öllu. Endilega sendu mér póst á kristrun.birgisdottir@mrn með nafni og kennitölu til þess að ég geti kíkt á námsferilinn þinn.
2012/2/08
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
mig langar nuna seinnameir meira í skólann sem ég valdi í númer 2 og það eru meiri líkur á að ég komist inn í skóla númer 1, get ég samt farið í númer 2 og hvernig veit ég hvort ég kemst inn í þann skóla ?
Ef þú hefur komist inn í þann skóla sem þú valdir númer eitt þá færðu skólavist þar. Þú getur ekki breytt úr þessu því því skóarnir eru flestir búnir að fylla öll sín pláss
2011/6/22
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvað kostar að vera á heimavist hjá ykkur og hver eru skólagjöldin?
Þessi vefur er í umsjá mennta- og menningarmálaráðuneytisins. Þú væntanlega ert að spyrja um skólagjöld hjá einhverjum skóla er það ekki? Ef svo er þá vil ég benda þér á að hafa samband við viðkomandi skóla til að fá þessar upplýsingar
2011/6/02
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég frétti að í versló þurftu 1994 strákar meðalseinkunn 8.2 en stelpur meðalseinkun 8.8 til að komast inn.
Breytist þetta á þessu ári eða helst einkunnin ?
Það fer allt eftir því hve margir sækja um og hvaða einkunnir umsækjendur hafa. Ómögulegt að spá fyrir um hvaða einkunn þarf til að komast inn hverju sinni.
2011/3/26
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hverju breytir það ef maður velur brautir núna í forinnrituninni eða í vor? Getur maður breytt hvenær sem er án þess að það breyti því hvort maður kemst í skólann ?
Þú getur breytt umsókninni þinni fram til 9. júní sem er jafnframt síðasti dagurinn fyrir þá sem eru að útskrifast úr 10. bekk núna í vor til að sækja um skólavist á haustönn 2011. Þú getur því breytt umsóknni þinni eins og þú vilt þangað til og það hvað þú breytir oft hefur engin áhrif á það hvort þú kemst inn í skólana sem þú á endanum sækir um í.
2011/3/23
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Segjum sé svo að ég fari t.d. í versló og fer síðan í próf væri ég þá að fara í erfiðara próf en t.d. hjá menntaskóla við sund ? eða er þetta sameiginleg próf hjá öllum skólum ?!?
Skólarnir eru ekki með sameiginleg próf. Hvort prófin eru erfiðari hjá Versló eða MS get ég því miður ekki svarað
2011/4/07
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvað þýðir Samþykkt, í bið ?
Það þýðir væntanlega að þú hefur verið samþykkt en hringdu í viðkomandi skóla og athugaðu þetta til að vera viss
2011/6/09
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég heyrði að það væri hægt að taka einhver próf og sleppa fyrsta áfanganum í því fagi í framhaldskóla. Hvernig virkar það ?
Ég veit ekki alveg við hvað þú átt en t.d. þeir sem hafa búið erlendis geta tekið stöðupróf í tungumálum. Einhverjir taka líka áfanga á framhaldsskólastigi í 10. bekk og fá þá áfanga metna í áfangakerfi.
2011/3/30
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Þarf að skilgreina endanlegt val innan brautar við innritun í framhaldsskóla, eða er nóg að velja braut?
Það er nóg að velja braut
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Sæl/sæll
Ég er 45 ára kona með sveinspróf, en langar til þess að skoða það að ljúka stúdentsprófi á einhverjum tíma. Spurningin er: Hvar fæ ég upplýsingar um það hvaða fög ég þarf að taka í viðbót við þau sem ég hef lokið nú þegar og hvort þið hafið þær upplýsingar, eða þarf ég koma þeim upplýsingum í einhvern framhaldsskólann og láta meta það eða ?
Bestu kveðjur
Ingunn Mjöll Sigurðardóttir
kt:2002665799
Sæl Ingun.
Umsóknarfresti fyrir þá sem eru fæddir 1994 eða fyrr lýkur á miðnætti í kvöld. Þannig að þú þarft að hafa hraðar hendur viljir þú sækja um. Ég myndi benda þér á að sækja um á menntagatt.is í einhvern fjölbrautarskóla og bendi t.d. á FB, FÁ eða BHS ef þú býrð á höfuðborgarsvæðinu en annars á þann skóla sem er þér næstur
2011/5/31
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er hægt að eyða umsókninni sinni?
Ef þú ert í 10. bekk þá fer umsóknin ekki í vinnslu hjá skólunum sem þú sækir um hjá fyrr en eftir að umsóknarfresti lýkur 9. júní. Þú getur því alltaf farið inn í umsóknina þína fram að þeim tíma og tekið skólana í burtu eða breytt þeim. Ef enginn skóli er valinn er umsóknin ekki gild og fer ekki áfram.
Ef þú ert eldri nemandi þá getur þú alltaf farið inn á umsóknarvefinn og valið "afturkalla umsókn". Það þýðir að umsóknin fer þá frá þeim skóla sem hún er komin til og til þín aftur.
Eftir að skóli hefur unnið með umsóknina og sett á hana stöðu, samþykkt eða hafnað þá er ekki hægt að eyða henni.
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvort er betra að sækja strax um skóla s.s. 4.apríl eða er betra að bíða þangað til einkunnirnar úr lokaprófunum eru búin, fyrir 1995 og eldri ?
Það skiptir í raun ekki máli. Skólinn sem þú ert að sækja um í sér í hvaða námsgreinum þú ert í núna og raðar inn á þig samkvæmt því
2012/3/30
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Áttu ekki byrja að sækja um 16.mars??
Tímasetningar fyrir innritun á haustönn 2011 eru:
Forinnritun fyrir nemendur sem eru í 10. bekk hefst 21. mars og er til 1. apríl 2011
Það verður hægt að breyta umsóknum úr forinnritun 16. maí til 9. júní 2011
Innritunartími fyrir aðra en þá sem eru í 10. bekk er 4. apríl til 31. maí 2011
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
hvenær fæ ég svar hvort ég hafi komist inn í skólann eða ekki? Eftir áramót er ekki í skóla eins er, og langar að komast inn eftir áramót
Það er sennilega misjafnt eftir skólum en flestir skólar koma til með að svara umsóknum í byrjun desember
2011/10/26
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég er að hefja mitt þriðja ár í framhaldsskóla(er í VMA, en tók fyrsta árið í VA fyrir austan) og er með vissar vangaveltur, því ég var búinn að velja fög fyrir næstu önn við lok síðustu annar, fékk góðar einkunnir og er búinn að borga innritunargjaldið. Ég gerði ekkert á menntagátt til að sækja um þessa önn. Kemst ég inn á næstu önm, hvort þetta hafi gengið sjálfkrafa fyrir sig?
það er best að þú spyrjir skólann sem um ræðir beint að þessu.
2011/6/15
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
ég sá hér í spurningu hér að ofan að skólar svari um miðjan desember hvort maður hafi komist inn eða ekki. Ég verð nú að segja að mér finnst það soldið seint að fá að vita það þá því ég var að sækja um skólavist á höfuðborgarsvæðinu en bý á landsbyggðinni og vil ekki fara að byrja að leigja íbúð í rvk og taka bara séns á því hvort ég komist inn eða ekki því það er ekki mikill tími sem maður hefur ef skólarnir svara ekki fyrr. bara svona smá ábending um að hafa þetta fyrr svo hægt sé að finna sér íbúð
Skil vel að þetta getur komið sér illa fyrir suma. Skólarnir þurfa sinn tíma til að vinna úr þeim fjölda umsókna sem þeir fengu. Það eru þó margir skólar sem hafa í hyggju að svara fyrr og því skora ég á þig að fylgjast vel með þinni umsókn á menntagatt.is
2011/11/28
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég er að velta því fyrir mér hvernig umsóknarferlið er fyrir útlending sem hefur búið áður á Íslandi og verið í íslenskum grunnskóla en verið erlendis síðustu ár. Viðkomandi er fæddur 1994.
Umsækjandinn sækir um líkt og aðrir sem flokkast undir eldri nemendur (þeir sem ekki eru að útskrifast úr 10. bekk) Nánari upplýsingar um innritun má finna á menntagatt.is
Athuga þarf að einkunnir úr erlendum skóla fylgi umsókninni þegar hún er send inn en grunnskólaeinkunnir 10. bekkjar koma sjálfkrafa inn þ.e. hafi viðkomandi útskrifast úr íslenskum grunnskóla.
2012/3/12
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég valdi Menntaskólann í Kópavogi í fyrstu innritunninni og valdi Fjölbrautarskóla Suðurlands í skóla númer 2. en núna er allt breytt og ég ætla bara í Fjölbrautarskóla Suðurlands. Er hægt að breyta því ? og hvenær ? og hvernig?
Þú getur breytt umsókninni þinni inn á menntagatt. Ferð inn á sama hátt og þegar þú sóttir um í forinnrituninni og velur "breyta umsókn" Athugaðu að þú þarft að vera búinn að breyta fyrir 9. júní
2011/4/28
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ef greiðsluseðill er ekki greiddur hjá einhverjum og þiggur ekki plássið í skólanum, fær þá sá sem var fremstur í röð inngöngu ?
Það er líklegt að svo sé en það er best fyrir þig að spyrja forsvarsmenn skólans um þetta mál
2011/7/05
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvenar fær maður svar hvort maður komist inní skólann? var að sækja um í skóla eftir áramót, vorönn2012.
Það er eitthvað misjafnt eftir skólum en allir verða búnir að gefa svar um miðjan desember
2011/11/08
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
hvernig sækir maður um lokainnritun?
Ef þú hefur sótt um í forinnritun og vilt ekki breyta neinu í þinni umsókn þá gildir sú umsókn sem þú settir inn þar. Ef þú vilt breyta einhverju þá þarftu að gera það í síðasta lagi 9. júní 2011. Það er því í raun engin lokainnritun, verður bara að vera búinn að setja inn umsókn fyrir þennan tíma.
2011/6/04
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ef ég hef dvalið erlendis fyrir utan Norðurlöndin seinast liðin tvö ár, og ætla að fá að sleppa við að taka dönsku í framhaldsskóla, hvar þarf það að koma fram?
Þú getur sett það inn sem athugasemd í umsókninni þinni. Annars er best fyrir þig að ræða beint við þann skóla sem þú ferð í þ.e. þannig að þú verðir ekki sett(ur) í dönsku á fyrstu önninni. Ég geri engu að síður ráð fyrir því að þú þurfir að fara í stöðupróf í dönsku til þess að fá að sleppa við hana. Upplýsingar um stöðupróf má finna á heimasíðu Menntaskólans við Hamrahlíð
2011/5/02
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvað þarf maður aftur að ná mörgum einingum til að ná önn í framhaldsskóla?
Það er sennilega eitthvað misjafnt eftir skólum. Ég ráðlegg þér að kíkja á heimasíðu þess skóla sem um ræðir og finna upplýsingar um þetta þar
2011/5/16
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvað felst nákvæmlega í skólaeinkunn nemenda í 10. bekk (lokavitnisburði)? Er þetta meðaltal einkunna eftir árið í 10. bekk eða jafnvel meðaltal úr 1-10 bekk. Er þessi lokavitnisburður kannski aðeins einkunn nemandans á vorprófi í 10. bekk? ...plús mat og umsögn umsjónarkennarans? Munu einkunnir úr öllum fögum berast framhaldsskólanum eða einhverjum ákveðnum fögum?
Grunnskólarnir ákveða sjálfir hvernig skólaeinkunn nemenda í 10. bekk er samsett. Í flestum tilfellum er um að ræða lokapróf á vorin og vinnueinkunn frá kennara sem byggir líklega á símati yfir önnina eða veturinn.
Framhaldsskólarnir fá einkunnir úr öllum fögum en líta flestir eingöngu á einkunnir í kjarnafögum sbr. íslensku, stærðfræði, ensku, samfélagsfræði og náttúrufræði. Það fer þó eftir því á hvaða braut er sótt en skólarnir líta sumir á einkunnir í dönsku og sérfög sem tengjast þeirri braut sem sótt er um. Hægt er að skoða hvaða inntökuskilyrði skólar setja inn á brautir á vefsiðum skólanna.
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég heyrði að það væri hægt að taka einhver próf og sleppa fyrsta áfanganum í því fagi í framhaldskóla. Hvernig virkar það ?
Ég veit ekki alveg við hvað þú átt en t.d. þeir sem hafa búið erlendis geta tekið stöðupróf í tungumálum. Einhverjir taka líka áfanga á framhaldsskólastigi í 10. bekk og fá þá áfanga metna í áfangakerfi.
2011/3/30
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég er búin að sækja um ákveðna braut en hvenær get ég valið áfangana sem eru á mínu eigin vali?
Þú velur ekki áfanga fyrir fyrstu önnina í framhaldsskóla, skólinn sjálfur sér um að raða á þig í byrjun.
2012/3/30
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er mannvirkja og byggingagrein grunnnám fyrir húsasmíði?
Grunnnám bygginga- og mannvirkjagreina er grunnnám fyrir m.a. húsasmíði. Nánar upplýsingar um námsleiðina má finna á eftirfarandi vefslóð:
http://www.tskoli.is/skolar/byggingartaekniskolinn/namsleidir-i-bodi/deild?fid=2&did=2
2011/3/25
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvernig fáum við að vita hvort við komumst inn?
Þeir sem voru að útskrifast úr 10. bekk fá að vita þetta í síðasta lagi 28. júní
2011/6/19
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég var að heyra að maður ætti að senda eitthvað um sjálfann sig ef maður sótti um í Verzló, einsog t.d. eitthvað um íþróttir sem maður hefði stundað og þannig ..
Eitthvað til í þessu?
Það er algerlega undir þér sjálfri/sjálfum komið hvort þú setur inn einhverjar persónulegar upplýsingar með umsókn þinni. Ég get því miður ekki svarað því hvort það hefur áhrif á hverjir komast inn. En ef þú vilt setja inn upplýsingar þá seturðu þær annaðhvort inn undir annað sem umsækjandi vill að komi fram eða hengir bréf í viðhengi undir "myndir eða skjöl"
2011/5/31
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
ég er hætt við að fara í menntaskóla í ár, en það er samt búið að borga skólagjöldin mín, get ég fengið þau endurgreidd ?
Þetta er eitthvað sem þú þarft að ræða við viðkomandi skóla
2011/8/31
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er komin nákvæmari dagssetning á hvenær nemendur mega búast við svari frá skólunum?
Fá þau bréf í pósti eða tölvupóst?
Sjá svar við spurningu hér að neðan
2011/6/15
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ef ég ert búin að fá samþykki frá skólanum sem valdi númer 1,get þá samt ekki farið í skólann sem ég valdi númer 2 ?
Þú getur það að öllum líkindum ekki vegna þess að skólinn sem þú valdir númer 2 er sennilega búinn að fylla öll sín pláss fyrir næstu önn
2011/7/05
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er hægt að sjá námsferilinn sinn úr öðrum framhaldsskólum hérna? Ef ekki, hvar get ég séð hann ef ég er ekki með aðgang að Innu?
Sendu mér póst á kristrun.birgisdottir@mrn.is og ég get sent þér ferilinn ef hann er enn inn í INNU
2011/8/31
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Getið þið sagt mér hver meðal einkuninn inn á málabraut inn í menntaskólann í Reykjavík var í fyrra ? ég var með 8,3 í meðaleinkunn í janúar, er það þá ekki raunhæft að sækja um ?
Skólinn getur best svarað þessari spurningu og því hvet ég þig til að hringja í MR til að fá svör við þessu.
2011/3/23
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er hægt að sækja um annann skóla um áramót ?
Já það er hægt. Næsta innritun er auglýst á menntagatt.is
2011/9/18
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvenær er búist við svari fyrir vorönn 2012 ?
Það er eitthvað misjafnt eftir skólum en reiknað er með að almennt séu komin svör um miðjan desember
2011/11/24
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvernig er með þá nemendur sem eru að flytja næsta sumar á milli landshluta? Fá þeir forgang í nýja skólahverfinu um leið og lögheimilið er flutt þangað? Í þessu tilfelli er um að ræða nemanda sem kemur af Norðurlandi til Reykjavíkur til annars foreldris síns.
Nei, forgangur tengist eingöngu úr hvaða grunnskóla nemandi útskrifast en ekki lögheimili eða búsetu.
Framhaldsskólar taka við nemendum allsstaðar af landinu óháð búsetu þeirra og raðast inn í umsóknarröð eftir einkunnum úr grunnskóla.
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvað kostar að vera í Verzló ?
Verzlunarskólinn getur best svarað þessari spurningu og því best að þú hringir í skólann og fáir svar við þessu.
2011/3/23
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Á hvaða hátt koma skilaboðin um að þú hafir komist inn í einhvern skóla, er það í gegnum póst eða í gegnum tölvupóst, eða e-ð annað?
Svör um skólavist birtast á menntagatt.is 27.júní. Einhverjir skólar senda sínum umsækjendum bréf og allir gíróseðla fyrir innritunargjöldum sem koma fram í heimabanka
2011/6/15
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ef ég hef klárað Framhaldsskólaáfanga í 10.bekk, hvaða áhrif hefur það á hvort að ég komist inn í ákveðna skóla eða ekki?
Líka: Hvernig get ég staðfest með umsókn að ég hafi lokið umræddum áföngum?
Einkunnir þínar úr 10.bekkjar prófunum eru það sem skólarnir fara eftir þegar þeir eru að raða umsækjendum í röð til inntöku þ.e. ég geri hér ráð fyrir því að þú sért að ljúka 10. bekk núna í vor. Skólinn þinn sér síðan um að senda inn einkunnir þínar og líka þær sem þú hefur lokið á framhaldsskólastigi þannig að þú þarft ekki að gera það sjálf/ur
2011/4/18
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er hægt að velja eingöngu listdansbraut, ef maður hefur núþegar lokið stúdentsprófi?
Ég átta mig ekki alveg á spurningunni, vinsamlegast útskýrðu frekar sbr. hvaða skóla ertu með í huga?
2011/5/11
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ef inn í umsókn er kominn nú þegar námsferill í framhaldsskóla og þar kemur fram nafn á forgangskóla en ekki nafn á þeim skóla sem var sótt um í fyrsta vali. Hvað þýðir það?
Ég skil ekki alveg þessa spurningu. Vinsamlegast útskýrið betur
2011/6/22
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég er 19 ára og er að útskrifast frá MH sem stúdent núna um jólin af félags- og málabraut. En mig langar að komast í FB eftir áramót á snyrtibraut, það er eini fjölbrautaskólinn/menntaskólinn með nám í snyrtifræði, fyrir utan auðvitað snyrtiskóla og ég hef mun meiri áhuga á að fara í FB. Af því að ég verð útskrifuð sem stúdent um jól þá er ég búin með fullt af áföngum sem eru á snyrtibraut í FB. Hvernig ætti ég að bera mig að? Ætti ég að hafa samband við FB eða bara sækja venjulega um hérna á menntagátt?
Þú þarft að sækja um á menntagáttinni þegar það opnar fyrir næstu innritun. Skólinn sem þú sækir um hjá fær aðgang að námsferlinum þínum þegar þú gerir það og sér þá hvað þú ert búin með og hvað þig vantar. Það getur samt verið gott fyrir þig að ræða við þá hjá FB áður en þú sækir um til að láta þá vita af þér því það er mikil aðsókn á snyrtibrautina og því gæti það komið sér vel fyrir þá að þú þarft ekki að taka mikið af grunnáföngum í bóklegum greinum.
Gangi þér vel.
2011/10/01
Svarið hefur hjálpað:
1
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég sótti um í fyrsta val Menntaskólann við Hamrahlíð og annað va Fjölbrautaskólann við Ármula. Menntaskólinn við Hamrahlíð er forgangsskólinn minn en ég var ekki með það góða einkunnir.. Er alveg öruggt að ef að ég kemst ekki inn í Menntaskólann við Hamrahlíð, að ég komist inn í Fjölbrautaskólann við Ármúla?
Ég get því miður ekki sagt að neitt sé öruggt en það eru góðar líkur á því að þú komist inn í FÁ ef MH synjar umsókninni þinni. Passaðu þó að það eru ákveðin inntökuskilyrði inn á brautir og ef þú hefur ekki náð þeim þá þarftu að byrja á því að sækja um á almenna braut
2011/6/06
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
hvenar er hægt að skrá sig inn fyrir næstu önn tildæmis eftir áramót ?
Innritun á vorönn 2012 fer fram á menntagatt.is frá 1.-22. nóvember
2011/9/18
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvað þýðir Hafnað, í bið ??????????????????
Það þýðir sennilega að umsókninni þinni hefur verið hafnað en skólinn á eftir að senda þér bréf þess efnis. Endilega hafðu samband við viðkomandi skóla til að fá nánari útskýringar
2011/11/30
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvað þarf maður að hafa í meðal einkunn til að komast inn í Versló ?
Það er best fyrir þig að hafa samband við Verslunarskólann til að fá svar við þessu.
2012/2/12
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvenær fæ ég að sjá í hvaða bekk ég fer ?
Þú verður að athuga það hjá þeim skóla sem þú ert að fara í
2011/7/05
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er hægt að taka umsókn til baka og breyta henni eftir að hún hefur verið send inn, og senda þá inn aftur?
Það er hægt að afturkalla umsóknir á meðan umsóknartímabil stendur yfir.
2012/4/27
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
ég er í kvennaskólanum en ég er ekki alveg að fíla mig þar þannig mig langar að skipta yfir í flensborg sem er hverfisskólinn minn, þarf ég að bíða þar til eftir næstu önn eða er einhvernvegin hægt að koma mér í hann eftir jól?
Umsóknafrestur fyrir skólavist á vorönn 2012 var til 22. nóvember. Ef þú hefur ekki sótt um fyrir þann tíma þarftu að bíða þar til það opnar fyrir umsóknir á haustönn 2012 sem verður í maí. Það gæti verið gott fyrir þig að setja þig í samband við þann skóla sem þú hefur hug á að sækja um í fyrir þann tíma til að láta vita af þér.
2011/12/12
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Í dag er 23. júní
Ef maður er ekki búinn að fá bréf um staðfestingu skólavistar, hvað gerir maður þá?
Á maður að örvænta eða bíða?
Ekki örvænta áður en bréfin eru send út :) Þau eiga að fara í póst á morgun og þá opnast einnig fyrir stöðu umsókna á menntagatt.is
2011/6/23
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvenær fær maður að vita hvort maður hafi fengið skólavist ef maður er fæddur eftir 1996 ?
Það er eitthvað misjafnt eftir skólum. Mæli með að þú hafir samband við þá skóla sem þú valdir og spyrjir þá um hvenær þeir ætla að vera búnir að afgreiða sínar umsóknir
2012/4/30
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
ef maður er búinn að vera stunda nám í útlöndum í öðru skólakerfi og vill sækja um í íslenskum skóla næstu önn. hvernig myndi maður fara að því?
Þú sækir um á menntagatt.is og lætur fylgja gögn (einkunnir) frá erlendum skólum í viðhengi. Það fer svo eftir þeim skóla sem þú ferð í hvernig fyrra nám er metið.
2012/5/21
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég er að klára fyrsta árið í framhaldsskóla. Ég er að fara að flytja suður og búinn að sækja um í skóla fyrir sunnan. Eru líkur á að ég fái ekki inn í neinn skóla fyrir sunnan og endi þá í engum skóla?
Ps. ég er orðinn 18 ára.
Þú átt að fá skólavist. En það er ekki víst að það verði í þeim skóla sem þú ert að sækja um í. Námsferill þinn úr þeim skóla sem þú ert að hætta í skiptir hér miklu máli. Því betri námsferill því meiri líkur á því að þú fáir það sem þú ert að óska eftir.
2011/5/16
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
í hvaða skólum get ég farið og lært bakarann?
Menntaskólinn í Kópavogi býður upp á nám í bakarariðn. Nánari upplýsingar um námið má sjá á þessari vefslóð: http://mk.is/index.php?option=com_content&view=article&id=97&Itemid=161
2011/10/26
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Sæl, ég sótti bara um einn skóla og fékk synjun, er 18 ára 5. júlí, verð ég þá að bíða og sækja um á vorönninni? Kveðja
Sendu mér póst þar sem kemur fram nafnið þitt og kennitala á kristrun.birgisdottir@mrn.is
2011/7/12
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Þarf að senda viðbótargögn (t.d. vottorð frá skóla erlendis) til beggja skólanna sem maður sækir um eða er nóg að senda þau til skólans sem er í fyrsta sæti?
Viðbótargögn eru sett inn í umsóknina og báðir þeir skólar sem sótt er um fá aðgang að þeim gögnum.
2012/5/21
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
hvaða skolar eru góðir til að læra snyrtifræði ?
FB er allavega að með námsbraut fyrir snyrtifræði og upplýsingar um hana má sjá á http://www.fb.is/namid/namsbrautir/snyrtibraut/
Einnig eru einhverjir einkaskólar að kenna snyrtifræði.
2011/10/30
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Þegar nemandi er búinn að skila umsókn og umsóknarfrestur er útrunninn og nemandi vill skoða sína umsókn á þá ekki að koma fram þegar hann smellir á hnappinn forgangsskóli hvort hann hafi valið forgangsskóla eða er hnappurinn bara til að sýna nemendum hvaða skóla þeir geta sótt um í forgang áður en þeir senda umsókn inn. Nú er dóttir mín búin að sækja um og setti forgangsskóla í 2. val en þegar ég ýti á hnappinn forgangsskóli kemur ekki nafn á neinum skóla. Á ekki nafnið á skólanum sem hún setti í 2. val og er hennar forgangsskóli að koma fram þarna ? Ég vil vera viss um að hún sé örugglega í forgangi þar sem hún valdi þennan skóla til að tryggja sig því hann er á okkar heimasvæði.
Hnappurinn er eingöngu til að sýna hvaða forgangsskólar fylgja hverjum grunnskóla fyrir sig. Framhaldsskólarnir eru meðvitaðir um hvaða grunnskólar hafa forgang og afgreiða umsóknir samkvæmt því.
2011/6/11
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Með hvernig einkunn kemst maður inn í Kvennó ? kemst maður með 8,5 eða 8,7 ?
Best er fyrir þig að hafa samband við Kvennaskólann vegna þessa
2012/4/25
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég sótti um í Hússtjórnarskólanum fyrir næsta haust. Hvenær fæ ég að vita hvort ég komist inn? Er það á svipuðum tíma og venjulegir menntaskólar á landinu?
Það er best að hafa samband við skólann til að fá upplýsingar um hvenær þeir ætla að gefa svör við umsóknum i skólann
2012/2/14
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hérna hver eru skilyrðin um að fá skólavist hjá Verzló þeir sem eru ekki á 1. ári ? Er búin að leita útum allt á síðunni þeirra og ég finn ekki neitt, og ef ég kemst inn en fylli ekki öll skilyrðin og lendi í 3.bekk, þá vil ég ég bara vera í mínum skóla.
Varðandi þessa spurningu þá er best að þú hafir samband beint við Verslunarskólann
2012/5/21
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég er að klára 10.bekk í bandaríkjunum og stefni á að fara í framhaldsskóla á Íslandi, og var að velta fyrir mér hvenær ég þarf að sækja um í framhaldsskóla og hvernig það fer fram?
Allar upplýsingar um innritun eru á http://menntagatt.is
Þú sækir um 21. mars til 1. apríl með því að senda umsókn inn rafrænt í gegnum Menntagáttina. Þú getur síðan breytt umsókninni 16. maí til 9. júní.
Þú þarft að láta það koma fram í athugasemd í umsókn að þú ljúkir 10. bekk í Bandaríkjunum og hvenær er fyrirhuguð útskrift. Gott væri ef þú gætir látið einkunnaspjaldið fylgja með umsókninni sem viðhengi og minnst á það í athugasemdadálk, en ef þú nærð ekki að fá útskriftarspjaldið þitt fyrir 9. júní verður þú að hafa samband beint við skólana sem þú sækir um hjá og láta þá vita af því og segja þeim hvenær þú getir sent þeim það. Þú skalt síðan vera í reglulegu sambandi við skólann upp á að þeir taki tillit til ólíkra námsgreina sem þú ert að ljúka og slíkt.
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvar finn ég upplýsingar um þau fög sem ég þarf að klára til að verða stúdent? (Fög sem allir þurfa að klára)
Það er misjafnt eftir brautum og skólum hvaða fög þarf að klára til að verða stúdent. Ég vil benda þér á heimasíður skólanna en þar koma fram upplýsingar um hvaða námsbrautir eru í boði og hvaða námsgreinar þær innihalda.
2011/11/09
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hvaða einkunnir sjá framhaldsskólarnir? sjá þeir meðaltalseinkunnina úr miðsvetrar/vorprófunum eða sjá þeir meðaleinkunnina úr vinnueinkunnuni + prófseinkunnuni?
Skólarnir sjá lokaeinkunn í hverju fagi fyrir sig og því best fyrir þig að fá nánari upplýsingar um samsetningu einkunnar hjá viðkomandi grunnskóla
2012/4/25
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Fær maður að vita hvað það voru margir á íslandi eða hversu mörg prósent sem sóttu um Verzló sem 1 val, í ár?
Þú getur auðveldlega reiknað þetta út úr töflunni sem er á vefsíðunni: menntagatt.is/innritun undir tölulegar upplýsingar
2011/6/06
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ef nemandi sem var að klára 10. bekk er byrjaður í sumarskóla og á ólokið áfanganum en vill ekki að það komi fram með einkununum úr grunnskólanum. Vill bara ráða þegar hann er búinn að klára hvort hann sýnir það. Hvers vegna birtist það strax á umsókninni að hann er skráður í sumaráfanga? Er það vaninn?
Venjan er sú að einkunnir nemenda úr sumarskóla birtast á INNU og eru því sýnilegar þeim skóla sem viðkomandi stundar nám í. Þetta ekki valkvætt
2011/6/11
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
hvernir fær maður svarið? með tölvupósti eða venjulegum pósti??
Þú getur fylgst með umsókninni þinni inni á menntagatt.is (notar veflykilinn líkt og þegar þú sóttir um). Þú færð einnig sent bréf í pósti frá þeim skóla sem þú fékkst skólavist í.
2011/6/22
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Góðan dag!
Er búin að lesa bréf sem var sent núna varðandi innritun í framhaldsskóla. Þar kemur fram að innritun fari fram í tveimur skrefum, fyrst forinnritun og síðan lokainnritun. Þarf nemandi að taka þátt í forinnritun? Er hann með minni möguleika á að komast í þann skóla sem hann vill ef hann sleppir forinnritun og skráir sig bara inn í maí/júní
Það er engin skylda að taka þátt í forinnritun og sleppi nemendur því á hann ekki minni möguleika á að komast inn í þann skóla sem hann velur í maí/júní. Við mælum þó með því að nemendur taki þátt í forinnritun því niðurstöður úr henni hjálpa okkur við ýmsa þætti er varða innritun. Endilega ef þú vilt fá frekari upplýsingar þá hringdu í síma 5459572
2012/3/14
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
hvar get ég hversu margir sóttu um hvaða skóla í forinnrituninni?
Upplýsingar um forinnritun má nálgast á menntagatt.is sjá vefslóð hér að neðan:
http://efni.frodi.is/innritun/h12/forinnritunval3april2012.pdf
2012/5/21
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég er tvítug og búin að vera í dagskóla í MS, MH og FB. Svo líka í fjarnámi hjá Versló. Var síðast í Sumarskóla FB 2010. Er búin að vera í pásu í rúmt ár og nú ætla ég að taka einhverja áfanga í fjarnámi aftur. En ég er ekki alveg með á hreinu hvað ég er búin með og hvaða áfanga ég á eftir. Við hvern tala ég til að fá að vita hvaða áfanga ég hef klárað? Alla skólana?
Sæl
Sendu mér tölvupóst á kristrun.birgisdottir@mrn.is með símanúmerinu þínu.
kveðja,
Kristrún
2012/1/04
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er hverfisskiptingin alveg hætt?
Já þ.e. skólarnir sjálfir ákveða núna hvort þeir taka frekar við umsóknum úr sínu nærumhverfi. Upplýsingar um það má sjá á heimasíðum skólanna þ.e. eftir hverju þeir fara við innritun nýnema
2012/3/30
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég er í framhaldsskóla núna en er ósátt og ætla mér að skipta um skóla. Þegar ég ýti á innritun þá fæ ég upp umsóknina síðan ég sótti um framhaldsskólann sem ég er núna í. Á ég að stroka bara út það sem stendur þar og senda upp á nýtt í skólann sem ég vil frekar fara í eða hvernig á ég að gera þetta?
Já, þú skalt breyta þessari umsókn og senda hana inn í þá skóla sem þig langar meira í.
2011/3/22
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Af hverju sjást ekki allir framhaldsskólar í flipanum á umsókninni þar sem á að velja skóla?
Einhverjir skólar hafa verið seinir til að opna en þetta á að komast í lag í dag eða fljótlega
2012/3/13
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Umsóknin mín er en í vinslu samt eru allir búnir að fá svör og skólarnir komnir í sumarfrí. Hvenar fæ ég þá svar og hvernig get ég komist að því?
Sendu mér póst á kristrun.birgisdottir@mrn.is með nánari upplýsingum s.s. kennitölu og símanúmeri og ég hringi í þig
2011/7/05
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hérna ég er að spá í að sækja um í Verzlunarskóla Íslands, ég er fædd 1995. En þarf maður að ná eitthverjum mjög góðum einkunum ? Getur maður lent í bekknum á eftir s.s. fara í 3 í staðinn fyrir 4.
Það er best fyrir þig að hafa samband beint við Verslunarskólann til þess að fá svör við þessari spurningu
2012/5/07
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Hversu mikið vesen er að skipta um skóla um áramótin? T.d. úr MS yfir í Versló. Frétti að það þyrfti taka áfanga í fjarnámi aukalega.
Varðandi þetta er best að þú hafir samband við þann skóla sem þú hefur hug á að komast í um áramótin.
2011/9/30
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
ég hef sótt um í menntaskólanum í kópavogi og tækni skólanum. Það stendur í fyrsta vali (MK): samþ. í öðrum skóla. öðruvali (tækniskólinn) : Samþykkt er einhver möguleiki að geta breytt þessu ?
Þetta þýðir að þú hefur fengið inni í skóla númer 2 en ekki 1. Þessu er væntanlega ekki hægt að breyta því MK sennilegt að búið sé að fylla öll pláss í MK
2011/7/07
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Er hægt að fara í hraðnám, s.s klára skólann á 3 árum þótt maður sé búin með 3 annir fyrir, er fædd 1994. Og hvar er það þá hægt..
Það er ekki um neitt sérstakt hraðnám að ræða en þeir nemendur sem standa sig vel geta tekið fleiri áfanga í töflu í þeim skólum sem bjóða upp á áfangakerfi og eru því fljótari að klára sem því nemur
2012/3/30
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
ég sótti um Listdansbraut í Menntaskólann við Hamrahlíð en komst ekki inn.. er séns að ég geti sótt um aftur um jólin og eru líkur á að ég komist eitthvað frekar inn þá?
Það getur alveg verið að þú komist inn um áramótin. Best er þó að fá upplýsingar um þetta hjá MH
2011/6/24
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Eru meiri líkur að fá skólavist í skólanum ef maður sækir um fyrr (þeir sem eru fæddir eftir 1996) ??
Nei það á ekki að skipta máli hvenær þú sækir um innan umsóknartímans því skólarnir fara ekki að vinna úr umsóknum fyrr en því tímabili lýkur
2012/5/07
Svarið hefur hjálpað:
0
Hjálpaði svarið þér?
Já
Ég er búin að týna lykilorðinu mínu inn á menntagáttina. Hvar get ég fengið nýtt?
Þú getur nálgast þetta inn á menntagáttinni undir flipa sem heitir "sækja um eða týnt lykilorð"
2011/2/18