|
|
| Nýtt stafrænt, gagnvirkt námsefni |
Vorið 2006 auglýsti menntamálaráðuneytið styrki til gerðar gagnvirks, stafræns námsefnis sem væri aðgengilegt á netinu. Áhersla var lögð á námsefni í ensku, dönsku, íslensku og stærðfræði, jafnframt því sem það skyldi nýtast sem stuðningur við einstaklingsmiðað nám og sveigjanleika í kennslu. Einnig var gerð krafa um að námsefnið tengist markmiðum aðalnámskráa og það yrði tilbúið á árinu 2007. Alls bárust ráðuneytinu umsóknir um 25 verkefni, af þeim hlutu 16 styrki.
Námsefnið verður samkvæmt samningum aðgengilegt fyrir alla án endurgjalds i eitt ár. Því er ætlað að mæta þörf fyrir námsefni í áföngum sem færast milli skólastiga og auðvelda fyrstu skref við breytta námsskipan. Verkefnið hafði 62 milljónir frá menntamálaráðuneytinu og Verkefnisstjórn um upplýsingasamfélagið en þau verkefni sem hlutu styrki fengu frá 500.000 til 7.000.000 hvert.
Námsefnisgerð hefur verið í höndum fyrirtækja og stofnana sem eru ýmist búin að skila afurðinni eða að leggja lokahönd á verk sín. |
|
Námsefnið er kynnt hér á Menntagátt en Símenntun, rannsók og ráðgjöf í KHÍ hefur haft umsjón með kynningum á því.
Námsefnið hefur verið flokkuð í fjóra flokka eftir námsgreinum. Lesa má m.a. um markmið, hugmyndafræði, viðfangsefni, markhóp og kennsluhugmyndir við hvert efni. |