MenntGrensásvegi 16a108 Reykjavík
sími: 599 1440 fax: 599 1401netfang: ingahlin@mennt.is
Menntamálaráðuneytið stóð fyrir UT2006 - ráðstefnu um þróun í skólastarfi, föstudaginn 3. mars 2006. Ráðstefnan var haldin í Fjölbrautaskóla Snæfellinga í Grundarfirði. Um 300 ráðstefnugestir hvaðanæva að af landinu tóku þátt í ráðstefnunni sem er fyrsta gagnvirka ráðstefnan sem fram fer hér á landi. Á UT2006 var áhersla lögð á sveigjanlega kennsluhætti. Ráðstefnugestir voru virkir þátttakendur í dagskránni og formlegir fyrirlestrar í lágmarki. Skipulag ráðstefnunnar var með nýstárlegum hætti en á ráðstefnunni gátu ráðstefnugestir komið athugasemdum eða fyrirspurnum á framfæri jafnharðan gegnum tölvukerfi ráðstefnunnar (MSN messenger). Meðal þess sem var fjallað um á ráðstefnunni var: Hvernig má nýta hljóðglærur, íslenskunám fyrir útlendinga á netinu og hugkort sem tæki til náms og kennslu. Nánari upplýsingar um dagskránna má finna hér.
Ráðstefnustjórar voru Sölvi Sveinsson, skólastjóri Verzlunarskóla Íslands og Brynhildur Ólafsdóttir, fréttamaður.UT ráðstefnurnar hafa undanfarin ár verið mjög vinsælar enda kjörinn vettvangur til að líta til framtíðar. Ráðstefnurnar eru frábært tækifæri til að hitta annað skólafólk, afla sér þekkingar og skiptast á skoðunum.
Smellið á myndina til vinstri til að skoða dagskrá UT2006. Nánari upplýsingar um dagskrá ráðstefnunnar má nálgast hér.
"); }