| Sérdeildir og starfsbrautir í framhaldsskólum |
Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Breiðholti Á starfsbraut FB fer fram verklegt nám sem tengist hinum ýmsu námsgreinum brautarinnar og vinnustöðum á Reykjavíkursvæðinu. Námið er í formi einstaklingsmiðaðra verkefna þar sem nemandinn lærir að byrja á verki, rekja sig í gegnum verkþætti og ljúka verki á viðunandi hátt. Lögð er áhersla á að efla sjálfstæði, frumkvæði og auka úthald og einbeitingu.
Starfsbraut - Sérnámsbraut Borgarholtsskóla Boðið er upp á fjögurra ára nám þar sem á fyrsta og öðru ári er lögð áhersla á að viðhalda og bæta við þá færni og þekkingu sem fyrir er, en á þriðja og fjórða ári er lögð áhersla á tengingu við atvinnulífið þar sem nemendur fara í starfskynningar og þjálfun. Lögð er áhersla á að deildin einangrist ekki heldur sé hluti af skólaheildinni.
Starfsbraut Fjölbrautaskólans í Garðabæ Á starfsbraut fyrir fatlaða nemendur í FG eru gerðar kennsluáætlanir fyrir nemendur á hverri önn. Þar er tekið mið af stöðu nemenda, óskum nemenda sjálfra og foreldra, þeim áföngum sem nemandinn getur nýtt sér innan skólans.
Starfsbraut Verkmenntaskóla Austurlands Markmið kennslunnar er að auka sjálfstraust og aðlögunarhæfni nemendanna. Það er reynt með því að gefa þeim einstaklingsmiðuð námstækifæri og stuðla þannig að því að nemendur beiti hæfileikum sínum og auki færni sína í að takast á við viðfangsefni fullorðinna í daglegu lífi eins og þau birtast þeim á heimili, í vinnu og í tómstundum.
Starfsbraut 1, 2 og 3 við Fjölbrautaskólann við Ármúla Starfsbraut 1 er námsbraut til fjögurra ára. Lögð er áhersla á undirstöðuatriði í námsgreinum á fyrsta og öðru ári. Námið er starfstengt á þriðja og fjórða ári. Starfsbraut 2 er ætluð fötluðum sem hafa verið í sérdeild/-skólum og hafa ekki forsendur til þess að stunda nám á öðrum námsbrautum. Námið á starfsbraut 3 er einkum ætlað alvarlega þroskaheftum og fjölfötluðum nemendum.
Starfsbraut Framhaldsskólans á Húsavík Starfsbraut er námstilboð fyrir nemendur sem geta einhverra hluta vegna geta ekki nýtt sér almenn tilboð framhaldsskólans. Námið einstaklingsmiðað og er bæði bóklegt og verklegt. Námið getur verið mjög breytilegt milli anna eða ára. Meginmarkmið starfsbrautar er að efla nemendur til virkrar þátttöku í samfélaginu og gera þá sem mest sjálfbjarga í athöfnum daglegs lífs.
Starfsbraut Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra Starfsbraut er ætlað að búa nemendur undir aukna þátttöku í þjóðfélaginu á eigin forsendum. Leitað er leiða til að finna styrkleika og áhugasvið hvers og eins með það að markmiði að styðja viðkomandi til aukins þroska, frekara náms og starfsþjálfunar. Þetta nám gefur ekki starfsréttindi, hins vegar býr það nemanda undir þátttöku á vinnumarkaði og auðveldar að fá launaða vinnu við hæfi að námi loknu.
Starfsdeild Fjölbrautaskóli Suðurnesja Boðið er upp á starfsdeild fyrir nemendur sem hafa ekki forsendur til þess að stunda nám á öðrum námsbrautum framhaldsskólans. Markmiðið er að bjóða verklegt og bóklegt nám sem miðar að því að auka sjálfstraust, sjálfstæði og aðlögunarhæfni nemenda með því að veita þeim einstaklingsmiðuð námstækifæri.
Starfsbraut Fjölbrautaskóla Vesturlands Gert er ráð fyrir að nemendur brautskráist eftir fjögurra ára nám.
Starfsbraut Fjölbrautaskóla Suðurlands Markmið kennslunnar er að auka sjálfstraust, sjálfstæði og aðlögunarhæfni nemendanna, með því að gefa þeim einstaklingsmiðuð námstækifæri og stuðla þannig að því að þeir beiti hæfileikum sínum og efli færni sína í að takast á við viðfangsefni fullorðinna í daglegu lífi eins og þau birtast í tengslum við eigin persónu, heimili, vinnu og tómstundir.
Starfsbraut Menntaskólans á Ísafirði Nám og kennsla á starfsbraut er einkum ætluð fötluðum nemendum, sem hafa verið í sérdeild eða sérskólum og hafa ekki forsendur til að stunda nám á öðrum námsbrautum skólans. Markmið námsins eru m.a. að nemandi fái tækifæri til að kynnast námi og/eða starfi við hæfi og auki og efli vinnufærni sína. Starfsbraut Verkmenntaskólans á Akureyri
Sérdeild Flesnborgar Um er að ræða fjögurra ára námstilboð. Á 1. og 2. námsári er áhersla lögð á hefðbundið bóknám með starfstengdu ívafi. Á 3. og 4. námsári er áhersla á starfskynningar og vinnustaðanám. Nemendur sérdeildar hafa jafnframt möguleika á að stunda nám í almennum áföngum.
Sérdeild fyrir einhverfa og sérdeild - heimilisbraut við Menntaskólinn í Kópavogi Í MK eru tvær sérdeildir, það er önnur er fyrir einhverfa en hin er svo kölluð heimilsbraut. Námið á þeirri síðarnefndu hentar ekki hreyfihömluðum.
Sérdeildir Iðnskólans í Reykjavík Námið er fjögur ár. Nemendur velja sauma, málm, eða blandað verklegt nám.
Fyrir utan fyrrnefndar starfsbrautir og sérdeildir þá hafa fatlaðir nemendur stundað eða stunda nám við nokkra aðra framhaldsskóla. Má í því sambandi nefna Fjölbrautaskóli Snæfellinga, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum, Menntaskólinn á Egilsstöðum og Menntaskólinn við Hamrahlíð.
| Náms- og starfsendurhæfing |
 |
|
Janus endurhæfing - www.janus.is Janus endurhæfing ehf. er fyrirtæki þar sem fram fer atvinnuendurhæfing. Leitast er við að sameina krafta sem flestra aðila í þjóðfélaginu þannig að hægt sé að bjóða upp á samræmda þjónustu í atvinnuendurhæfingu. Janus er í samstarfi við Iðnskólann í Reykjavík. Samstarf heilbrigðis- og menntakerfisins gefur fólki möguleika á því að mennta sig um leið og það stundar endurhæfingu. Þannig gefst kostur á að skoða möguleika til atvinnu og auka þekkingu sem lið í því að komast aftur út á atvinnumarkaðinn. |
| |
|
|
 |
|
Hringsjá - www.hringsja.is Hringsjá býður náms- og starfsendurhæfingu. Hringsjá er ætluð einstaklingum eldri en 18 ára, sem vegna sjúkdóma, slysa eða annarra áfalla þurfa að endurmeta og styrkja stöðu sína. |
| |
|
|
Tölvumiðstöð fatlaðra - www.tmf.is Tölvumiðstöð fatlaðra er þjónustumiðstöð, sem veitir upplýsingar og ráðgjöf um tölvur og tölvutengdan búnað. Hún þjónar öllum hópum fatlaðra, ungum sem öldnum. Veitt er ráðgjöf til einstaklinga, faghópa og stofnana. Allar nánari upplýsingar á www.tmf.is
FFA - Fræðsla fyrir fatlaða og aðstandendur Landssamtökin Þroskahjálp ásamt Sjálfsbjörgu landssambandi fatlaðra, Styrktarfélagi Lamaðra og fatlaðra og Styrktarfélag vangefinna standa að FFA, fræðslu fyrir fatlaða og aðstandendur. Fræðslan fer m.a. fram í formi námskeiða. Þar gefst fötluðum og aðstandendum þeirra tækifæri til að hitta aðra sem eru í svipuðum sporum, kynnast sjónarmiðum þeirra og miðla af eigin reynslu. Fræðileg umfjöllun og umræður um þau efni sem tekin eru fyrir hverju sinni auka möguleika þátttakenda til að takast á við margvíslegan vanda sem fötlunin leiðir af sér.
Sem dæmi um efni sem tekin hafa verið fyrir á slíkum námskeiðum eru: Þjónusta við foreldra barna, unglingsárin, að flytja að heiman o.fl. Einnig hafa verið haldin námskeið fyrir systkini fatlaðra barna.
Upplýsingar um námskeiðin er að finna á vefjum félaganna sem standa FFA.
Málþing um upplýsingatækni í menntun fatlaðra – bætt aðgengi Á ári fatlaðra 2003, gekkst menntamálaráðuneytið fyrir málþingi um upplýsingatækni og menntun fatlaðra. Þar voru flutt fróðleg erindi en glærur frá þeim flestum er að finna hér.
| Atvinnumál fatlaðra og starfsþjálfun |
Lög og reglugerðir um málefni fatlaðra í lögum um málefni fatlaðra, sem sett voru til að tryggja fötluðum jafnrétti og sambærileg lífskjör við aðra þjóðfélagsþegna, segir m.a um atvinnumál:
- Veita skal fötluðum aðstoð til að sinna störfum á almennum vinnumarkaði þegar þess gerist þörf. Skal það gert með sérstakri liðveislu á vinnustað, svo og fræðslu og leiðbeiningum til annars starfsfólks.
- Veita skal fötluðum starfsþjálfun í almennum fyrirtækjum eða stofnunum þar sem því verður við komið. Í þeim tilvikum skal gera sérstakan samning þar sem m.a. er kveðið á um þjálfunartímabil og greiðslu kostnaðar.
Sjá einnig:Reglugerð um atvinnumál fatlaðra
Reykjavíkuryfirlýsingi Evrópudeild Alþjóðasamtaka um vinnu og verkþjálfun (Workability International – Europe) eru stærstu samtök vinnuveitenda sem veita fólki með fötlun störf, þjónustu og stuðning til starfa í Evrópu. Reykjavíkuryfirlýsingin er framlag Evrópudeildar Alþjóðasamtaka um vinnu og verkþjálfun (WI-E) á Evrópuári fatlaðra, 2003.
|