Forsíða
Forsíða
Leikskóla
Grunnskóla
Framhaldsskóla
Tónlistarskóla
Símenntun
Viðurkenningu á námi
Málefni fatlaðra
Á döfinni
Styrki
Erlend samskipti
Fréttir
Sérverkefni MRN
menntagatt.is
Kynning
Ávinningur
Hnappar / merki
Jólakort
Efni á þinn vef
Höfundaréttur
Tenglasafn
Vetrarmyndir
The Educational Gateway

  Stefjasafnið á Menntagátt - leiðbeiningar

 

Opnað hefur verið stefjasafn á Menntagátt þar sem grunn- og framhaldsskólanemendur geta sent inn stef (stutt lög). Höfundum valinna stefja verða veittar sérstakar viðurkenningar.

Innsend stef eiga að tengjast menntun. Þannig er hægt að semja stef fyrir skóla (t.d. Fjarðarskólastefið, skólabjöllustef) eða námsgreinar (t.d. stærðfræðistefið), einnig er tilvalið að semja Menntagáttarstef.  

Stefið má vera sungið og/eða spilað á hvaða hljóðfæri eða „tæki“ sem er.

Að sjálfsögðu þarf stefið að vera frumsamið af þeim sem sendir það inn.

 

 
 

Um stefjasafnið

  • Allir grunn- og framhaldsskólanemendur geta tekið þátt.
  • Hljóðskrár eiga að berast á stafrænu formi, mp3, í gegnum Stefjasafn Menntagáttar.
  • Stefin mega vera að hámarki einnar mínútu löng og skrárnar ekki stærri en 2 MB (2 MB = 2048 KB).
  • Öll innsend stef eru aðgengileg í safninu þar sem hægt er að hlusta á þau.*
  • Stefin er hægt að senda með kveðju til vina og ættingja út um allan heim.
  • Dómnefnd velur stef og verða höfundar þeirra verðlaunaðir sérstaklega.

Hvernig tek ég þátt?

  1. Farðu inn á stefjasafniðmenntagatt.is/gallery  
  2. Veldu skólastig með því að smella á einn af flokkum sem í boði eru.
  3. Smelltu á tengilinn ,,Smelltu hér til að taka þátt" og þá opnast gluggi með innsendingarformi.
  4. Sæktu mp3 skrána með stefinu þínu á tölvunni hjá þér og fylltu út upplýsingar sem beðið er um.
    Mundu að smella á ,,Senda".
  5. Ef allar upplýsingar eru í lagi færðu skilaboð um að skrá hafi verið móttekin.
  6. Innsendar mp3 skrár, þ.e. stef, birtast á vefnum um leið og þær hafa verið yfirfarnar af starfsfólki Menntagáttar (fljótlega eftir að þær hafa verið sendar inn).
  7. Þegar mp3 skrá hefur birst á vefnum er hægt að senda hana þaðan með kveðju sem berst í tölvupósti til vina og ættingja.

Hver getur sent inn fleiri en eitt stef og ekki skiptir máli hvort stefin séu send heiman að frá eða úr skóla.

(*) Ekki er leyfilegt að senda efni eftir aðra. Tónlist eða stef sem sótt hafa verið af Netinu eða tekin af geisladiskum verður eytt og birtast því ekki í safninu.

Hljóðvinnsla

Engar sérstakar kröfur eru gerðar til stefjanna varðandi hvernig þau eru unnin. Það er um að gera að láta sköpunargleðina njóta sín.

Stefin mega ekki vera lengri en 1 mínúta í spilun en að öðru leyti skiptir ekki máli hvernig stefið er. Dæmi um mismunandi gerðir eru sef sem eru tekin upp með hljóðnema, stef sem samin eru með hjálp tölvuforrita (s.s. „lúppuforrita“) eða blanda af þessum aðferðum.

Aðeins er leyfilegt að senda inn skrár af gerðinni mp3 og þær mega ekki vera yfir 2MB að stærð.

Hér er vísað á ganlegt efni og vefi þar sem finna má forrit og upplýsingar um tónlistar- og hljóðvinnslu.

Höfundaréttur

Eigendur stefjanna hafa að sjálfsögðu fullan höfundarétt á sínu efni.
U
m leið og stef er sent inn á vefinn samþykkir sendandi að:

  • Stefið sé öllum aðgengilegt á stefjasafni Menntagáttar
  • senda megi stefið úr safninu með tölvupósti til annarra
  • nota megi stefið til kynningar á stefjasafninu
  • krefjast ekki höfundarréttalauna vegna ofangreindrar notkunar.

Sjá einnig upplýsingar á vefsíðu Menntagáttar um höfundarétt.

Auðvelt að hlusta á og leita að stefjum?

    • Þegar komið er inn á síðu hvers skólastigs birtast fyrst nýjustu stefin sem búið er að staðfesta.
    • Eldri stef má skoða með því að fletta áfram yfir á næstu síður.
    • Einnig er mjög þægilegt að nota leitina til þess að leita að stefi eftir t.d. nafni nemanda eða heiti skóla.
     

     
     

    Viðurkenningar

    Allir hljóta þann heiður að fá sitt efni birt í sefjasafninu. Auk þess velur dómnefnd stef og verðlaunar höfunda þeirra.

    Við val á stefjum mun dómnefnd hafa eftirfarandi til viðmiðunnar.

    • Stefið sé unnið af nemanda
    • Stefið beri vott um frumleika og sköpunarkraft
    • Stefið sé vel unnið og útfært (miðað við aldur höfundar)
    • Einnig verður tekið tillit til ýmissa faglegra þátta, s.s. uppbyggingar og útsetningar.

    Tilkynnt var um niðurstöður dómnefndar þann 2006. Höfundar stefjanna fá sendar upplýsingar í tölvupósti um val dómnefndar.

    Tónastöðin  veitir viðurkenningar

    Tónastöðin

    Viðurkenningarnar sem Tónastöðin mun veita, verða í formi gjafabréfa og geta því nemendur valið úr fjölbreyttu úrvali verslunarinnar, sjá  www.tonastodin.is.

    Innan skamms verður nánar gerð grein fyrir viðurkenningunum.

     
       

     

    Fara inn á stefjasafn

    Tónastöðin


    Stefjasafn

     

    Á stefjasafninu er hægt að:

    • Senda inn mp3 skrár
    • Hlusta á innsend stef
    • Senda stef til vinar

    Smelltu ->

     

     
     

    Hægt er að setja inn stef til
    1. maí 2006.

     
     

     

     

     

     

    Upplýsingablað og fyrirspurnir

    Upplýsingablað um stefjasafnið er hægt að nálgast hér. 
    Word (.doc) skjal
    PDF skjali

    Senda fyrirspurn vegna
    stefjasafns til Menntagáttar
     

     

     

    Hnappur

    Hnappinn hér á ofan er hægt að setja inn á vefsíður og búa til tengil úr honum inn á stefjasafnið, http://menntagatt.is/gallery


    "); }