Forsíða
Forsíða
Leikskóla
Grunnskóla
Framhaldsskóla
Tónlistarskóla
Símenntun
Viðurkenningu á námi
Málefni fatlaðra
Á döfinni
Styrki
Erlend samskipti
Fréttir
Sérverkefni MRN
menntagatt.is
Kynning
Ávinningur
Hnappar / merki
Jólakort
Efni á þinn vef
Höfundaréttur
Tenglasafn
Vetrarmyndir
The Educational Gateway

Ókeypis forrit á Netinu sem nýtast við að semja og búa til stef
Hér er að finna upplýsingar um nokkur forrit sem gætu nýst þeim sem vilja senda inn stef í stefjasafn Menntagáttar. Öll þessi forrit er hægt er að nálgast ókeypis á Netinu.

     
Smella til að sjá stærri mynd  

Forrit til að semja tónlist
Forritið ACIDplanet er forrit sem hægt er að nota til að semja tónlist. Sú útgáfa sem býðst ókeypis á Netinu býr ekki yfir öllum þeim möguleikum sem selda útgáfan hefur.

Sjá nánar um ACIDplanet á www.acidplanet.com/tools/?p=acid 
Af þessari slóð er hægt að sækja forritið download.acidplanet.com/acidxpress.exe 

 

     
Audacity - skjámynd, smella til að sjá stærri  

Forrit til að taka upp hljóð
Forritð Audacity er notað til að taka upp hljóð og vinna með hljóðrásir. Það er hægt að taka upp, klippa, skeyta saman og fleira. Forritið er ókeypis.

Það er hægt að lesa um forritið á audacity.sourceforge.net 
Héðan er hægt að hlaða niður forritinu (fyrir Windows)
prdownloads.sourceforge.net/audacity/audacity-win-1.2.3.exe?use_mirror=voxel

Annað svipað forrit er Code-it, sjá  www.code-it.com/wave_editor.htm  Það er einfaldara og býður ekki upp á jafn marga möguleika og Audacity.

 

 

   
Skjámynd af dBpower forritinu  

Forrit til að breyta hljóðskrám yfir á mp3 form
dBpower AMP Music Converter er forrit til að breyta hljóðskrám. Þar sem stefjasafnið gerir aðeins ráð fyrir mp3 skrám gæti þetta forrit verið gagnlegt ef stefið hefur verið vistað á öðru skráarsniði.

Hægt er að sækja forritið af www.download.com/3000-2140-10042534.html?part=83769 
Hægt er að lesa um forritið á www.dbpoweramp.com/dmc.htm 

Þetta forrit er vel þekkt og fær góða umsögn hjá flestum. Það er einfalt í notkun. Hægt er að hægrismella á hljóðskrá og vista sem mp3 skrá.

Það getur verið að það þurfi að hlaða einnig niður viðbótum við forritið ef það getur ekki breytt ákveðnum skrám. Til þess er farið inn á þessa síðu www.dbpoweramp.com/codec-central.htm viðbótin sótt og sett á sama stað og forritið er vistað.

Forritið er ókeypis en eftir 30 daga er boðið upp á að kaupa það, það er þó ekki nauðsynlegt og forritið virkar áfram (sjá ábendingu þegar forritinu er hlaðið niður.

     
Tónmennt - búa til tónlist  

Forrit á vef þar sem hægt er að setja saman tóna og takta
Á Tónmenntavefnum tonmennt.is er að finna forrit þar sem hægt er að búa til sína eigin tónlist (ekki þarf að hlaða neinur niður á tölvuna). Valdir eru tónar og taktar og síðan með því að smella á „SPILA“ er hægt að hlusta á afraksturinn. Það er líka hægt að vista tónlistina / stefið sem er búið til, sem MIDI skrá. Henni er hægt að breyta á mp3 snið með forritinu sem er nefnt hér á undan.

Vefslóðin er: www.tonmennt.is/tonsmidar/sequencer.php 
Sjá einnig á síðunni staff.dasdeck.de/valentin/midi/sequencer.php en þar má finna fjölmörg dæmi um það sem hægt er að gera með þessu sniðuga forriti.

Til að hafa aðgang að öllu á Tónmenntavefnum þarf að vera með áskrift en síðan að forritinu er öllum opin.

Jazz++
Jazz++ er sagt vera notað jafnt af áhugafólki sem atvinnumönnum til að taka upp og blanda (mixa) tónlist. Þrátt fyrir að það sé ókeypis á það að jafnast á við dýran hugbúnað. Sjá nánar á www.jazzware.com/zope 

QuartzAudiomaster  
Þetta forrit er til að taka upp vinna með hljóðskrár, m.a. mp3 skrár. Sjá nánar á www.digitalsoundplanet.com/SoftwareHouse/Products/Audio_Master/audio_master.phtml

Protools
Upplýsingar um þetta forrit er á www.digidesign.com/ptfree/ 

Fleiri forrit
Hægt er að finna fleiri ókeypis forrit tengd tónlist www.stagepass.com/download

Hafðu samband ef þú hefur athugasemdir um forritin sem nefnd eru hér að framan eða ef þú veist um önnur sem hafa reynst vel.

 

"); }