Forsíða
Forsíða
Leikskóla
Grunnskóla
Framhaldsskóla
Umsókn um nám
Um framhaldsnám
Námsbrautir
Framhaldsskólar
Námskrá
Fagfélög kennara
Framhaldskólar
Háskólar
Foreldrar
Tónlistarskóla
Símenntun
Viðurkenningu á námi
Málefni fatlaðra
Á döfinni
Styrki
Erlend samskipti
Fréttir
Sérverkefni MRN
menntagatt.is
The Educational Gateway

Menntamálaráðuneyti

Umsókn og upplýsingar Um framhaldsnám Námsbrautir Framhaldsskólar

Smella til að fara í umsókn
 
 

Smella til að sækja um veflykil

Umsóknir um nám í framhaldsskólum fyrir haustönn 2010

Innritun nemenda úr 10. bekk grunnskóla (fædd 1994 eða síðar)

Forinnritun 12.-16. apríl 2010
Endurskoðun á vali skóla 7.-11. júní 2010

Almenn innritun eldri umsækjenda (fæddir 1993 eða fyrr)

20. apríl - 31. maí

Rafræn innritun í framhaldsskóla er tvískipt, þ.e. nemendur fæddir 1994 eða síðar og eru að ljúka námi úr 10. bekk grunnskóla sækja um 12.-16. apríl 2010 og geta endurskoðað val sitt 7.-11. júní 2010. Innritun eldri umsækjendur fæddra 1993 eða fyrr fer fram 20. apríl - 31. maí 2010. Einstakir framhaldsskólar eru með annan umsóknarfrest fyrir umsækjendur fædda 1993 eða fyrr og er hægt að nálgast upplýsingar um það á vefsíðum skólanna.

Umsækjendur þurfa að hafa tiltækan veflykil til að sækja um.  Hægt er að sækja um veflykil héðan af síðunni og fá hann sendan til sín í netpósti. Ef veflykill er týndur er einfaldlega sótt um nýjan veflykil.

Umsækjendur úr 10. bekk hafa forgang að ákveðnum framhaldsskólum, sjá nánar á vefslóðinni: http://framhaldsskolar.menntagatt.is/forgangur-ad-skolavist/

Við útfyllingu umsóknar er framhaldsskóli valinn ásamt einum skóla til vara, sem og námsbraut og önnur þjónusta sem er í boði í einstökum skólum. Ef viðkomandi skóli er ekki í boði í fellivalmynd sem er verið að sækja um í, þá er það vegna þess að skólinn er ekki með opið fyrir innritun. Í þeim tilfellum er best að hafa samband við viðkomandi skóla og spyrjast fyrir. Athugið einnig að ef áhugi er fyrir að taka ákveðna áfanga á næstu önn þá er gott að nefna það í athugasemdareit.

Hver framhaldsskóli afgreiðir þær umsóknir sem honum berast. Þurfi skóli að synja umsókn verður hún send til þess skóla sem sótt var um til vara. Fái umsækjandi sem er ólögráða (yngri en 18 ára) ekki inni í neinum skóla berst umsókn til mennta- og menningarmálaráðuneytis.

Framhaldsskólarnir senda umsækjendum tilboð um skólavist ásamt greiðsluseðli fyrir skólagjöldum með tilgreindum greiðslufresti. Sé gjald ekki greitt á réttum tíma er litið svo á að umsækjandi ætli ekki að þiggja veitta skólavist.

Nemendur eiga að fá senda staðfestingu í netpósti um að umsóknin hafi verið send inn. Athugið að ef þessi staðfesting berst ekki gæti pósthólfið haldið að hún sé "spam", þe. ruslpóstur. Byrjið því á að leita þar að kvittuninni. Á umsóknarvefsíðunni undir Staðfesta, er einnig hægt að smella á "Senda staðfestingu í netpósti".

 

 

"); }