Hér eru upplýsingar hvernig hægt er að nýta upplýsingar af Menntagátt inni á öðrum vefjum. Það er bæði hægt með því að nota svo kallaða rss-þjónustur eða með því að setja inn tengla, s.s. inn á flokkað námsefni eða námskrár.
rrs-þjónusta Menntgáttar
Menntagátt býður upp á fjórar rss-veitur, það er listar yfir; það sem er á döfinni, Menntagáttarfréttir, vinsælt efni og nýtt efni. Hér fyrir neðan eru tenglar í hvern lista fyrir sig.
Dæmi um notkun á rss af Menntagátt má t.d. sjá hjá Grunnskóla Seltjarnarness og á vef Borgarhólsskóla á Húsavík þar sem fréttir af Menntagátt birtast með öðrum fréttum undir „Innlendar fréttir“.
Það er mögulegt að setja kóðann sem kemur hér fyrir neðan, beint inn á viðkomandi vefsíðu. Þetta eru boxin tvö sem sjást á upphafssíðu Menntagáttar og víðar, í dálknum hægramegin. Ef þessi kóði er settur í htm-kóða vefsíðu birtast boxin nákvæmlega eins og þau eru á Menntagátt. Það er mögulegt að breyta því. Ýmsar gagnlegar upplýsingar um rss er að finna á vefnum rss.molar.is, t.d. varðandi að breyta letri og litum.
Listi yfir nýtt efni á Menntgátt
Topplisti: <br>
<iframe src="http://www.menntagatt.is/rss/birta_nytt_efni.aspx" width="180" height="220" frameborder="0">
Hér kemur HTML texti sem birtist bara í vöfrum sem þekkja ekki IFRAME.
<a href="http://www.menntagatt.is/rss/birta_nytt_efni.aspx">Nýtt efni</a>
</iframe>
Listi yfir vinsælt efni á Menntgátt
Vinsælast: <br>
<iframe src="http://www.menntagatt.is/rss/birta_vinsaelast.aspx" width="180" height="220" frameborder="0">
Hér kemur síðan html-texti sem birtist bara í vöfrum sem þekkja ekki IFRAME.
<a href="http://www.menntagatt.is/rss/birta_vinsaelast.aspx">Vinsælast</a>
</iframe>
Ýmsir aðilar veita þjónustu á Netinu í tengslum við rrs. Í því sambandi má t.d. nefna FeedBurner en sú þjónusta er að hluta til ókeypis. Með FeedBurner er hægt að sníða rss-ið að eigin óskum. Hér má nálgast html-kóða sem birtir Menntagáttarfréttir með hjálp FeedBurner. Á FeedBurner.com má síðan finna upplýsingar um hvernig hægt er að breyta útlitinu. Önnur svipuð þjónusta er Feed Digest, feeddigest.com, en þar er hægt að sameina margar rss-veitur að eigin vali og fá allt það nýjast frá þeim til að birtast í einum ramma.
Merki Menntagáttar
Merki (lógó) Menntagáttar er að finna í nokkrum útgáfum hér á vefnum. Það er hægt að nota til að búa til hnappa á vefsíður sem eru tenglar inn á menntagatt.is.
Póstlisti Menntagáttar
Hér til hægri og einnig á forsíðunni er hægt að skrá sig á póstlista Menntagáttar. Þú skráir netfang þitt, hakar við skólastig og smellir á þar sem stendur „Skrá“, neðarlega til hægri. Á tveggja vikna fresti (á sunnudögum) er sendur út listi yfir það efni sem skráð hefur verið í gagnagrunn Menntagátt, vikurnar tvær þar á undan. Upplýsingar eru aðeins sendar þér um námsefni sem á við það skólastig sem þú valið. Á listanum getur einnig verið efni sem hefur þegar verið skráð en upplýsingar lagfærðar eða bætt við þær.
Hægt er að skrá sig af póstlistanum með jafn einföldum hætti, þ.e. netfangið er skráð þar sem stendur „Afskrá netfang:“ og smellt á „Afskrá“. Ef þú skiptir um netfang, endilega mundu að breyta skráningunni, þ.e. afskrá gamla netfangið og setja inn það nýja.
Vantar þig frekari upplýsingar?
Spurningar og athugasemdir má alltaf senda á menntagatt (hjá) menntagatt.is.