Hér er að finna upplýsingar um styrki sem veittir eru til verkefna á sviði menntamála. Vinsamlegast hafðu samband ef þú veist um fleiri styrki sem ættu að vera taldir upp hér. Upplýsingar um Evrópska og norræna styrki tengda menntamálum er að finna á undirsíðum.
| Styrkir veittir af menntamálaráðuneytinu |
Þróunarsjóður námsgagna
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að nýsköpun, þróun, gerð og útgáfu námsgagna fyrir leik-, grunn- og framhaldsskóla í því markmiði að tryggja framboð og fjölbreytileika námsgagna í samræmi við þarfir nemenda og skóla. Umsóknir skulu berast menntamálaráðuneyti, Sölvhólsgötu 4, 150 Reykjavík, í síðasta lagi 8. febrúar. Sækja skal um á sérstökum eyðublöðum sem fást í menntamálaráðuneytinu. Einnig er eyðublöðin og frekari upplýsingar að finna á vef ráðuneytisins.
Endurmenntunarsjóður framhaldsskóla í umsjón Endurmenntunarstofnunnar HÍ
Samstarfsnefnd um endurmenntun framhaldsskóla úthlutar styrkjum til fagfélaga, skóla og einstaklinga. Meðal þess sem sjóðurinn styrkir eru greinabundin sumarnámskeið fagfélaga, námskeið kennara í upplýsingatækni og fyrirlestra sem framhaldsskólar standa að. Ekki eru veittir styrkir til skólaheimsókna,menningar- og/eða tómstundanámskeiða eða verkefni sem falla undir menntaáætlun ESB. Nánari upplýsingar eru á: endurmenntun.hi.is/Forsida/Namsframbod/Framhaldsskolakennarar
Þróunarsjóður framhaldsskóla
Sjóðurinn veitir styrki til þróunarverkefna í framhaldsskólum og til fullorðinsfræðslu. Með þróunarverkefnum er átt við tilraunir og nýbreytni í skipulagi náms, kennsluháttum, kennslu, námsgögnum, námsmati og mati á skólastarfi. Meðal annars verði lögð áhersla á að nýta kosti upplýsingatækni við nám og kennslu. Auglýst eftir umsóknum einu sinni á ári. Eyðublöð fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins og á vef ráðuneytisins menntamalaraduneyti.is.
Þróunarsjóður grunnskóla
Skólastjórar grunnskóla fyrir hönd skóla, kennarahópa eða einstakra kennara geta sent inn þátttökutilkynningu. Aðrir aðilar en grunnskólar geta tekið að sér auglýst verkefni. Krefjist slík verkefni beinna tengsla við starfandi skóla. Menntamálaráðherra hefur umsjón með sjóðnum og setur reglur um styrkveitingar. Úthlutunarnefnd skilgreinir forgangsverkefni hvers árs og tekur ákvörðun um úthlutun styrkja. Auglýst er eftir umsóknum í janúar ár hvert. Upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð (þegar opið er fyrir umsóknir) eru á rannsokn.khi.is/throunarsjodur og á vef menntamálaráðuneytisins má einnig finna upplýsingar.
Endurmenntunarsjóður grunnskóla
Menntamálaráðherra setti á stofn Endurmenntunarsjóð grunnskólakennara 1999 til að fylgja eftir nýrri aðalnámskrá grunnskóla. Hlutverk Sjóðsins er að veita fé til endurmenntunar kennara í grunnskólum. Styrkjum er úthlutað til þeirra sem hyggjast standa fyrir endurmenntun fyrir kennara í grunnskólum t.d. kennaramenntunarstofnana, skólaskrifstofa, sveitarfélaga, skóla, félaga, fyrirtækja og annarra, sem bjóða endurmenntun fyrir kennara í grunnskólum. Sjóðurinn veitir ekki fé til ferða og uppihalds kennara sem njóta endurmenntunarinnar. Stjórn sjóðsins metur umsóknir og gerir tillögur til menntamálaráðherra um úthlutun. Umsóknareyðublöð eru á vef menntamálaráðuneytisins menntamalaraduneyti.is.
Þróunarsjóður leikskóla
Hlutverk sjóðsins er að stuðla að þróunarverkefnum í leikskólum landsins. Með þróunarverkefnum er átt við nýjungar, tilraunir og nýbreytni í uppeldisstarfi. Um styrk geta sótt sveitastjórnir og/eða leikskólastjórar, leikskólakennarar eða einstakir leikskólakennarar. Sækja má um styrk til nýrra verkefna og verkefna sem þegar eru hafin. Nánari upplýsingar og rafræn umsóknareyðublöð eru á vef SRR.
Styrkir úr íþróttasjóði
Framlög úr Íþróttasjóði eru veitt til verkefna á sviði íþrótta, þar má t.d. nefna styrki til íþróttarannsókna og útbreiðslu- og fræðsluverkefna. Auglýst er eftir umsóknum úr sjóðnum einu sinni á ári. Umsóknarfrestur er til 1. október ár hvert. Umsóknum skal skilað í menntamálaráðuneytið á þar til gerðum eyðublöðum. Þau fást í afgreiðslu menntamálaráðuneytisins og á menntamalaraduneyti.is.
Upplýsingar um fleiri styrki sem veittir eru af menntamálaráðuneytinu eða í umsjá þess er að finna á:
www.menntamalaraduneyti.is/sjodir-og-eydublod/
Styrkir Barnavinafélagsins Sumargjafar
Barnavinafélagið Sumargjöf hefur af og til auglýst styrki til rannsókna, lista og þróunarverkefna sem geta nýst börnum á leik- og grunnskólaaldri. Umsóknir ásamt greinargerð um verkefni skulu sendar til félagsin: Barnavinafélagið Sumargjöf, Pósthólf 5423, 125 Reykjavík, netfang: sumargjöf@simnet.is.
Sjóðir sem Rannsóknamiðstöð Íslands, Rannís, hefur umsýslu með eru eftirfarandi:
Upplýsingar um styrki sem Kennarasamband Íslands veitir
www.ki.is
Yfirlit yfir styrki hjá Hagþenki
Hagþenkir - félag höfunda fræðirita og kennslugagna, Hringbraut 121, 107 Reykjavík, netfang hagthenkir@hagthenkir.is. Á vef félagsins www.hagthenkir.is má finna upplýsingar um styrki til námsefnisgerðar.
| Styrkir vegna náms í Bandaríkjunum |
Námsstyrkir Stofnunar Leifs Eiríkssonar
Stofnun Leifs Eiríkssonar styrkir íslenska námsmenn til rannsókna eða náms í bandarískum háskólum. Styrkurinn felur í sér að rannsóknarkostnaður allt að $25.000.- er greiddur fyrir námsmann. Einn námsstyrkur á ári (Minningarsjóður Robert Kellogg) er ætlaður framhaldsnema frá Íslandi til náms í Háskólanum í Virginíu.
www.leifureirikssonfoundation.org
Námskeið fyrir kennara um Bandaríkin
Fjögurra vikna námskeið fyrir kennara við Luther Collega í Decorah, Iowa. Umsóknareyðublöð má finna á www.iceam.is Nánari upplýsingar gefa Ingibjörg ingibjorg.yr.palmadottir@utn.stjr.is og Hannes hannes@ki.is.