
Hér á eftir fer listi yfir verðlaunahafa á BETT 2004 og þær lausnir sem hlutu viðurkenningar.
Hugbúnaður fyrir leikskóla- og grunnskólastig

Útgefandi: Espresso Education Ltd:
Vefslóð: http://www.espresso.co.uk/news/press_releases/0306016_barrow.html
Lausn: Poetry Workshop
Poetry workshop er samstarfsverkefni Expresso og Barrow Community og er hluti af kennsluefni sem veittur er aðgangur að gegnum Netið. Efninu er skipt í fimm hluta:
- Hugmyndir að ljóðum
- Skriftarferlið
- Bókasafn
- Flutningur/framkoma
- Hittu ljóðskáldið
Poetry Workshop efnið inniheldur myndskeið, margmiðlunarefni, spurningar og leiki sem í sameiningu hafa það að markmiðið að vinna með hugtök, orðskilning og stuðla að þjálfun á sviði ljóðagerðar og ljóðalesturs. Þar að auki inniheldur efnið margar ljósmyndir, fjölda verkefna sem hægt er að prenta út og vel valdar vefsíður og fréttir sem tengjast viðfangsefninu.
Aðrar útnefningar í sama flokki:
Hugbúnaður fyrir efri stig grunnskóla

Sigurvegari: Krucible
Útgefandi: Immersive Education
Vefslóð: http://www.kar2ouche.com/imed/
Krucible er samsafn gagnvirkra hermiforrita (simulations) sem hönnuð eru til að gera nemendum kleift að kanna og vinna með náttúrulögmál og vísindalegar kennisetningar eða stærðfræðilegar formúlur með gagnvirkum tilraunum í rauntíma. Með aðstoð Krucible verður það leikur einn að vinna með hugtök og viðfangsefni sem oft á tíðum hefur reynst erfitt að kenna að koma á framfæri skýran og einfaldan hátt.
Krucible er hugbúnaður sem gerir kennurum og nemendum mögulegt að lífga upp á kennslu í raunvísindum og stærðfræði með því að setja viðfangsefnið fram á lifandi o g skemmtilegan máta. Hugbúnaðurinn inniheldur fjóra gagnvirka herma eða sýndarvinnustofur og inniheldur yfir 75 verkefni og tilbúnar tilraunir fyrir nemendur.
Aðrar útnefningar sama flokki:
Lausnir fyrir framhaldsskólastigið
Sigurvegari: PICmicro microcontroller training system
Útgefandi: Matrix Multimedia Ltd:
Vefslóð: http://www.matrixmultimedia.co.uk/
Matrix Multimedia fyrirtækið sérhæfir sig í náms- og kennsluefni sem tengist örtölvum (microcontroller) og notkun á þeim. Örtölvur eru töluvert notaðar í námi og kennslu og þá sérstaklega í greinum sem tengjast rafeindatækni og tölvustýringum. PICmicro örtölvurnar þykja mjög einfaldar í notkun og eru t.a.m. notaðar við kennslu á tölvustýringum, virkni örgjörva og hönnun og samansetningu á leikjum og hvers kyns vélmennum (róbótum).
Aðrar útnefningar í sama flokki:
Vélbúnaður fyrir leikskóla- og grunnskólastig

Sigurvegari: FlowGo
Útgefandi: Data Harvest
Vefslóð: http://www.data-harvest.co.uk/
FlowGo er búnaður sem tengdur er við tölvu, annað hvort með USB eða venjulegu raðtengi (serial). Búnaðurinn er sérstaklega hannaður til þess að vinna með og stjórna smáum raftækjum, s.s. 6v ljósaperum, hljóðgjöfum (buzzers), mótorum, ljósdíóðum og öðru slíku. Með FlowGo vélbúnaðinum og Flowol hugbúnaðinum geta nemendur kannað heillandi heim tölvustýringa bæði með raunverulegum íhlutum og á skjá tölvunnar. FlowGo er kjörið verkfæri til þess að efla skilning á tölvu- og rafkerfum, hvernig þau eru samansett og hvernig þeim er stjórnað.
Aðrar útnefningar í sama flokki:
Vélbúnaður fyrir efri stig grunnskólans

Sigurvegari: RM Teacher Tablet PC
Útgefandi: RM Plc
Vefslóð: http://www.rm.com/
Spjaldtölvur hafa enn sem komið er verið lítið áberandi í íslensku skólasamfélagi, en hafi einhver áhuga á því að nýta slík verkfæri er RM 12.1 tölvan spennandi kostur. RM 12.1 spjaldtölvan er ákjósanlegt verkfæri fyrir kennara. Hún er létt og meðfærileg en samt með 12.1" skjá og uppsettu Windows XP stýrikerfi. RM 12.1 er búin 30GB hörðum disk og bæði Firewire og USB 2.0 tengi gera notendum kleift að tengja hana við hvaða stafrænu myndavél sem er. Þráðlaust netkort er einnig hluti af staðalbúnaði.
Námsefni á Neti

Sigurvegari: The Espresso for Primary Service
Útgefandi: Espresso Education Ltd:
Vefslóð: http://www.espresso.co.uk/services/primary/index.html
Espresso for Primary er yfirgripsmikið safn stafræns efnis sem nýtist í fjölmörgum námsgreinum. Í raun er um að ræða þjónustu á Netinu þar sem m.a. er boðið uppá:
- yfir 35 klukkustundir af myndskeiðum og verkefnum í tengslum við innihald þeirra.
- Vikulegt fréttayfirlit með efni sem tengist viðfangsefnum námskráarinnar.
- Verkefni og þrautir í hundraðatali í formi margmiðlunar
- Yfir 1700 verkefni ætluð til prentunar
- Myndasafn
- Yfir 350 tengingar yfir á sérvaldar vefsíður
- Leitarvél
Þess má geta að í hverri viku bætist við nýtt efni á Espresso for Primary og gerast notendur áskrifendur að þjónustunni.
Aðrar útnefningar í sama flokki:
Sérkennsla á grunnskólastigi
Sigurvegari: Dyscalculia Screener
Útgefandi: nferNELSON
Vefslóð: http://www.nfer-nelson.co.uk/catalogue/catalogue_detail.asp?catid=81&id=990
Hugtakið dyslcalculía eða dyskalkúlía eins og það er oft skrifað á íslensku merkir erfiðleikar með tölur. Dyscalculia Screener er hugbúnaður sem, eins og nafnið gefur til kynna, er notaður er til þess að greina sértæka stærðfræðiörðugleika meðal nemenda. Hugbúnaðurinn inniheldur í raun staðlað mat eða próf og niðurstöður hans gefa til hvort notandi sýni einhver einkenni sértækra stærðfræðiörðugleika. Byggir matið á því að mældur er svörunartími nemanda við ákveðnum dæmum auk þess sem mæld er nákvæmni svaranna sem nemandinn gefur.
Aðrar útnefningar í sama flokki:
Sérkennsla fyrir efri stig grunnskólans
 Sigurvegari: ClozePro
Vefslóð: http://www.cricksoft.com/uk/products/clozepro/default.asp
Útgefandi: Crick Software:
ClozePro er hugbúnaður sérstaklega hannaður til þess að setja saman hvers kyns eyðufyllingarverkefni. Verkefnin má leggja fyrir nemendur innan ClozePro forritsins eða prenta út og afhenda á blaði. ClozePro býður upp á fjölmarga möguleika þegar kemur að hönnun verkefna og nota má bæði myndir og hljóð með verkefnum. Þá má tengja saman mörg verkefni þannig að þau myndi eina heild, ekki ósvipað og einstaka vefsíður mynda samstæðan vef. Aðrar útnefningar í sama flokki:
Skólastjórnun/námsmat

Sigurvegari: MAPS (Managed Assessment Portfolio System)
Útgefandi: TAG Learning Ltd:
Vefslóð: http://www.maps-ict.com/index.shtml
MAPS er netbundinn hugbúnaður sem gerir kennurum kleift að leggja fyrir og halda utan um verkefnaskil nemenda og námsmat í upplýsingatækni. Hver nemandi hefur aðgang að eigi verkefnaskilum í formi verkefnamöppu (portofolio) og getur auk þess borið eigin frammistöðu saman við frammistöðu annarra nemenda í sama aldurshópi. Kerfið inniheldur mikinn fjölda verkefna og sérstök áhersla er lögð á að tryggja öryggi þeirra gagna sem það hýsir. MAPS sparar kennurum bæði tíma og fyrirhöfn og gerir þeim mögulegt að einbeita sér að því sem mestu máli skiptir, þ.e. sjálfri kennslunni.
Aðrar útnefningar:
Framsækni/Nýbreytni

Sigurvegari: Radiowaves
Útgefandi: Cape UK and Synergy.tv:
Vefslóð: www.radiowaves.co.uk
RadioWaves er vefrit og útvarpsstöð á Netinu sem gerð er af ungu fólki fyrir ungt fólk. RadioWaves vefurinn byggir á því að notendur skrá sig fyrir aðgangi og hafa þá kost á því að koma eigin efni á framfæri, oftar en ekki í formi hljóðskráa. Hljóðskrár, sem geta innihaldið bæði tónlist og frásagnir eða fréttir, eru hýstar á miðlægum netþjóni og þaðan streymt um Netið þegar óskað er eftir (on-demand). Þannig getur hvaða skóli sem er ákveðið að koma efni sínu á framfæri á Radiowaves, hvort sem um er að ræða viðtal við skólastjórann eða sýnishorn af tónleikum hljómsveitar sem starfrækt er af nemendum. RadioWaves er kjörinn vettvangur til að koma efni á framfæri eða taka þátt í skoðanaskiptum um hvað sem máli skiptir og hentar öllum skólum óháð viðfangsefni. |