Yfirskrift UT2006 er „Sveigjanleiki í skólastarfi“. Það er menntamálaráðuneytið sem stendur fyrir þessari ráðstefnu um þróun í skólastarfi en hún verður haldin í Fjölbrautaskóla Snæfellinga. föstudaginn 3. mars 2006.
Áherslan á UT2006 er á sveigjanlega kennsluhætti og tekur sérstaklega til kennslufræðilegra lausna. Skipulagið er með nýstárlegum hætti og mun ráðstefnan verða góður vettvangur til umræðna, skoðanaskipta og miðlunar á þekkingu. Ráðstefnugestir verða virkir þátttakendur í dagskránni og formlegir fyrirlestrar verða í lágmarki.
Í bréfi sem sent var til skólastjórnenda voru þeir beðnir um að líta í kringum sig í skólastarfinu. Hvað er skólinn og starfsfólkið að gera sem er áhugavert og spennandi? Beðið var um ábendingar um einstaklinga til að kynna og halda uppi góðum umræðum um sveigjanlega kennsluhætti.
Óskað er eftir tillögum að kynningum og umræðuefni á UT2006 fyrir föstudaginn 13. janúar 2006.
Mennt sér um skipulagningu og framkvæmd ráðstefnunnar. Nánari upplýsingar veitir Inga Hlín á skrifstofu Menntar, í síma 599 1440 eða í netfanginu ingahlin@mennt.is.
Verið er að vinna í því að setja upplýsingar á vefinn www.menntagatt.is/ut2006.
|