Ávinningur
Eftirfarandi texti er frá menntamálaráðuneytinu en hann var saminn þegar unnið var að undirbúningi Menntagáttar árið 2002.
Ýmsir aðilar hafa ávinning af þjónustu Menntgáttar og eru hér dæmi um hann:
Menntamálaráðuneytið fær vettvang til að:
- miðla upplýsingum um stefnu sína um dreifmenntun
- stuðla að þróun og nýsköpun
- tengja markmið námskráa við námsefni, verkefni og próf
- auka samskipti ráðuneytisins við skólasamfélagið, stofnanir og einkaaðila sem koma að menntamálum
- auka alþjóðleg samskipti
- kynna nýjungar og efla notkun upplýsingatækni í skólum.
- hvetja til umræðu um menntamál
Stofnanir á vegum ríkisins fá aukin tækifæri til að:
- miðla efni til menntakerfisins
- koma á samstarfi við námsefnisframleiðendur
- efla tengsl við nemendur
- efla ímynd sína gagnvart almenningi
- kynna þjónustu sína
- nýta möguleika til menntunar fyrir starfsfólk
Sveitarfélög fá:
- betra aðgengi að stafrænu námsefni sem styður við kennslu í grunnskólum
- tækifæri til að skapa skólum sínum sérstöðu með því að leggja ólíkar áherslur í kennslu
- tækifæri til stuðnings við faglegt starf kennara í grunnskólum
- tækifæri til að koma á framfæri upplýsingum um menntamál sveitarfélagsins og ná sambandi við námsefnisframleiðendur, ferðamálaþjónustu og fleiri aðila
- stuðning við dreifkennslu, til dæmis fyrir fámenna skóla
Hagsmunasamtök:
- fagfélög kennara geta stuðlað að aukinni fagþekkingu og ábyrgð kennara í starfi
- stéttarfélög og samtök atvinnulífsins fá meiri innsýn inn í menntakerfið
- fá stuðning við símenntun á vegum fyrirtækja og stéttarfélaga
- aðilar sem vinna að velferð barna fá aðgang að upplýsingum
- samtök foreldra fá vettvang til að fylgjast með starfi skóla og koma ábendingum á framfæri
Nemendur:
- finna nám sem kemur til móts við þeirra þarfir
- fá aðgang að námssamfélögum
- fá aðgang að fjölbreyttara námsefni
- stunda nám á sjálfstæðari hátt en áður
- hafa tölvusamskipti við kennara og aðra nemendur
- hafa samskipti við sérfræðinga á ýmsum sviðum í háskólum, rannsóknastofnunum og víðar
- kynnast nýsköpun í skólastarfi
Kennarar fá tækifæri til að:
- styrkjast í starfi sem fagmenn
- spara tíma við leit að kennslugögnum
- nálgast markvissar upplýsingar
- koma eigin efni á framfæri
- nálgast styrki til þróunar kennslu og námsefnisgerðar
- vinna á nýsköpunarsvæði
- nota námssamfélög
- koma til móts við einstaklingsþarfir nemenda
- auðvelda skipulagningu kennslu og vinnu nemenda
- setja saman námsefni og beita kennsluaðferðum sem þeir telja best henta hverju sinni
- nálgast upplýsingar um hvernig koma á samstarfi við innlenda og erlenda aðila
Stjórnendur, skólastjórar, fræðslustjórar fá:
- aðgang að námi og námsefni af margvíslegum toga
- aðgang að námssamfélögum
- tækifæri til að skipuleggja skólastarf á markvissan hátt
- aðgang að upplýsingum sem miðla má til kennara
- auðvelda leið til að breyta skólastarfi
Foreldrar fá tækifæri til að:
- nálgast efni sem veitir þeim stuðning til að aðstoða börn sín
- fylgjast með þróun í skólastarfi
- skoða námssamfélög
- koma athugasemdum til viðkomandi aðila
Fyrirtæki fá:
- leið til að bjóða íslenska menntakerfinu þjónustu sína
- tengsl við aðila sem tengjast menntakerfinu
- tækifæri til að styrkja ímynd sína gagnvart menntakerfinu
- aðgang að námi og námsefni fyrir endurmenntun starfsmanna
- tækifæri til að koma námi og námsefni á framfæri
- tækifæri til að ná sambandi við hæfileikafólk í skólakerfinu
- tækifæri til að öðlast reynslu og þekkingu á þörfum skólakerfisins
- ábendingar og hugmyndir frá fólki innan skólakerfisins um framþróun vöru og þjónustu
Erlendir aðilar:
- fá aðgang að þjóðfélagi á mjög háu mennta- og tæknistigi til að þróa lausnir fyrir menntakerfi sín
- geta þróað vöru og þjónustu í samfélagi sem er smækkuð mynd af stærri markaðssvæðum
- íslensk fyrirtæki fá vettvang til að koma sér á framfæri erlendis