Forsíða
Forsíða
Leikskóla
Grunnskóla
Framhaldsskóla
Tónlistarskóla
Símenntun
Viðurkenningu á námi
Málefni fatlaðra
Á döfinni
Styrki
Erlend samskipti
Fréttir
Sérverkefni MRN
menntagatt.is
Kynning
Ávinningur
Hnappar / merki
Jólakort
Efni á þinn vef
Höfundaréttur
Tenglasafn
Vetrarmyndir
The Educational Gateway
Tenglar í nokkrar stofnanir, verkefni, félög og fyrirtæki sem tengjast menntun

Alþingi, ungmennavefur - ungmennavefur.is
Ungmennavefur Alþingis er kennslu- og upplýsingavefur sem hefur að markmiði að fræða ungmenni um Alþingi og störf þess. Sem kennsluvefur er hann sérstaklega sniðinn að aldurshópnum 10-16 ára en hentar einnig öllum sem vilja kynna sér sögu og starfshætti Alþingis.

Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins- www.ask.hi.is
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins veitir menntastofnunum og stjórnsýslufólki upplýsingar og aðstoð vegna þátttöku í fjölþjóðlegum samstarfsáætlunum í menntamálum. Hún þjónar stúdentum sem fara utan sem skiptinemar og aðstoðar þá sem hingað koma.
Evrópska skólanetið - eun.org
Evrópska skólanetið er alþjóðlegt samfélag sem meira en 20 evrópsk ráðaneyti menntamála standa að. Skólanetið styður við þróun menntamála um alla Evrópu til hagsbóta fyrir kennara og nemendur. Á menntagátt er íslensk síða um evrópska skólanetið.
Félag um menntarannsóknir (FUM)
Markmið FUM er að efla rannsóknir og þróunarstarf á sviði menntunar á Íslandi. Á heimasíðu félagsins er upplýsingum miðlað til félagsmanna, boðað til funda, tilkynnt um fræðslufundi, ráðstefnur og málþing.
 
Fræðslumiðstöð Reykjavíkur
Á heimasíðu Fræðslumiðstöðvar er hægt að nálgast margvíslegar upplýsingar um þjónustu Fræðslumiðstöðvar, skólana, fræðsluráð og margt fleira. Síðan á einnig að vera vettvangur skoðanaskipta um skólamál og þar eru nýjustu fréttir og tilkynningar um almenn málefni grunnskóla.
 
FS-net
FS-netið er háhraðanet sem tengir saman alla framhaldsskóla og símenntunar-miðstöðvar í landinu. Skýrr hf. er formlegur rekstraraðili á netinu með Landssíma Íslands sem undirverktaka.

Hvar?is - hvar.is
Hvar?is er vefur Verkefnisstjórnar um aðgang að gagnasöfnum. Þar eru upplýsingar um þau 31 gagnasöfn sem landsaðgangur er að, rúmlega 7.500 altexta tímarit, 330.000 rafrit engilsaxneskra bókmennta, 3 alfræðisöfn og 1 orðabók. 

Iðan
Upplýsingavefur um iðnað á Íslandi. Vefurinn er rekinn af Samtökum iðnaðarins og er ætlaður ungu fólki á öllum aldri.

 

Íslenska menntanetið - www.ismennt.is
Íslenska menntanetið býður skólum margskonar þjónustu, s.s. internetþjónustu og netföng. Menntanetið er með námsumhverfi á vef, þar sem kennarar geta sett upp námsefni og vefráðstefnukerfi fyrir umræðuhópa. Einnig geta skólar fengið sérhæfða ráðgjafarþjónustul. Skólatorgið og Námsvefurinn eru hluti af þeirri þjónustu sem Menntanetið býður.

Kennarasamband Íslands - www.ki.is
Kennarasamband Íslands er stéttarfélag kennara í leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólum, svo og skólastjórnenda (þó ekki skólameistarar framhaldsskóla) og námsráðgjafa. Á vef kennarasambandsins er að finna ýmsar upplýsingar um félagið, fréttir og fræðsluefni.

kennari.is
kennari.is er vefur fyrir kennara þar sem nálgast má upplýsingar um stafræna myndvinnslu, ýmsan hugbúnað sem nota má við kennslu og gerð stafræns kennsluefnis svo og hugmyndir að verkefnum þar sem upplýsingatækni er notuð.
Kennari.is
Landsskrifstofa Leonardó á Íslandi - leonardo.is 
Leonardo da Vinci er starfsmenntaáætlun Evrópusambandsins. Áætluninni er ætlað að styrkja og ýta undir ný viðhorf í stefnumótun og framkvæmd starfsmenntunar í þrjátíu Evrópulöndum.

Landsskrifstofa eTwinnig 
Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins veitir upplýsingar um eTwinning sem er hluti af áætlun ESB um rafræna menntun. Markmiðið með eTwinnig er að auka samskipti grunn- og framhaldsskóla með nýtingu upplýsingatækni.

eTwinning 

Landsskrifstofa Nordplus 
Undir Nordplus eru fimm áætlanir á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar en þær veita styrki til verkefna á sviði menntunar á öllum skólastigum. Alþjóðaskrifstofa háskólastigsins veitir upplýsingar um Nordplus.

Norden

Landsskrifstofa menntaáætlunar ESB
Markmið menntaáætlunarinnar er að stuðla að þróun öflugs þekkingarsamfélags í Evrópu.  Sérstök áhersla er lögð á samstarf og samnýtingu reynslu og þekkingar um menntun og þjálfun innan Evrópu.

Mentor - mentor.is
Mentor.is er heildstætt upplýsingakerfi fyrir skóla. Kerfið greiðir fyrir upplýsingaflæði innan skóla, til foreldra og sveitarfélaga. Megintilgangur kerfisins er annars vegar að auka möguleika foreldra á að fylgjast með skólagöngu barna sinna og hins vegar að auðvelda vinnu kennara, ritara og skólastjórnenda, s.s. við skráningu í hópa og stundatöflur, skráningu á ástundun, einkunnavinnslu og skipulagningu á einstaklingsmiðuðu námi..
 
Menntamálaráðuneyti Íslands - menntamálaráðuneyti.is
Á vef menntamálaráðuneytisins er að finna ýmsar upplýsingar um íslenskt menntakerfi. Þar er m.a. listi yfir alla skóla á landinu, leikskóla, grunnskóla, tónlistarskóla, framhaldsskóla og háskóla. Einning er skrá yfir söfn sem eru á vegum ríkisins.
Námsgagnastofnun - www.namsgagnastofnun.is
Námsgagnastofnun er ríkisstofnun sem gefur út margs konar námsgögn fyrir grunnskólann. Alls koma út 300-350 titlar árlega, þar af um 80-90 nýir titlar. Í nokkrum tilvikum henta námsgögnin einnig fyrir framhaldsskólann. Á vefnum má finna upplýsingar um allt útgefið efni og þar er aðgangur að námsefni á Neti.
Námsmatsstofnun - namsmat.is
Námsmatsstonun er faglega sjálfstæð vísindaleg stofnun á sviði uppeldis- og menntamála en gegnir auk þess veigamiklu og lögbundnu hlutverki í íslensku skólakerfi. Sérhæfing stofnuninnar er á sviði próffræði og námsmats, samanburðarannsóknum á menntakerfum og æskulýðsrannsóknum.
Norræna skólanetið -  www.nordskol.org
Norræna skólanetið er fyrir Norðurlöndin. Vefurinn skiptist í nokkra hluta, það er ma.a.; "kontaktgallerí", norrænar orðabækur, flokkað krækjusafn, tenglar í skólanet Norðurlandanna og aðrar valdar síður. Einnig er að finna á vefnum upplýsingar um Norrænaráðið og Norrænu ráðherranefndina.
Orðabók - ordabok.is
Á vefnum er enskt-íslenskt, íslenskt-enskt orðasafn með með um samtals 100.000 uppflettiorðum. Kaupa verður áskrift af orðasafninu en hægt er að fá frían reynsluaðgang í tvær vikur.

Rauði kross Íslands - redcross.is 
Fræðsla er hluti af starfi Rauða kross Íslands. Félagið leggur áherslu á skólafræðslu, með það að markmiði að kynna hugsjónir og grundvallarmarkmið hreyfingarinnar. Gefin hafa verið út fjöldi rita sem notuð eru í skólum og dreift á annan hátt.

 

Skólatorgið - skolatorg.is
Skólatorgið hefur að geyma sérhannað vefútgáfukerfi fyrir grunnskóla. Það inniheldur einnig fróðlegan upplýsingavef fyrir alla þá er koma að skólamálum. Skólatorgið er hluti af þeirri þjónustu sem Íslenska menntanetið býður upp á. Nánari upplýsingar á ensku, dönsku og frönsku er að finna á vefnum.

Skólavefurinn - skolavefurinn.is
Skólavefurinn er áskriftarvefur. Á honum er að finna efni í flestum námsgreinum fyrir nemendur og kennara í leik og grunnskólum. Á hverjum degi bætist við nýtt efni fyrri nemendur. Ætlunin er að vera einnig með efni fyrir foreldra.

Vefbókasafnið - vefbokasafn.is
Vefbókasafnið er samstarfsverkefni íslenskra almenningsbókasafna. Meginmarkmið þess er að auðvelda aðgengi almennings að efni á Veraldarvefnum.  Vefsíðurnar eru efnisflokkaðar og þeim raðað í kerfi.  Áhersla er á íslenskt efni og gæði frekar en magn. Síðurnar eru leitarhæfar eftir titli, efni og veffangi. Hægt er að skoða efnisorðalista í stafrófsröð og helstu efnisflokka.
 

3F - Félag um upplýsingatækni og menntun 
3F er félag þeirra sem starfa við upplýsingatækni í menntastofnunum landsins. 3F stendur fyrir Félag forritara fræðslukerfisins, en það var fyrsta nafn félagsins.

Félag um upplýsingatækni og menntun 

 

"); }