Þessa dagana vinnur mennta- og menningarmálaráðuneytið að nýrri og betri Menntagátt. Þar til nýja Menntagáttin er orðin tilbúin tekur framhaldsskólavefurinn Nám að loknum grunnskóla við sem Menntagátt í örfáa mánuði. Ástæðan fyrir því er sú að um þessar mundir er meirihluti gesta Menntagáttar að leita að upplýsingum um framhaldsskóla.
Fyrir þá sem vilja sækja efni á gömlu Menntagáttin þá hefur hún verið gerð aðgengileg á vefslóðinni: http://gamla.menntagatt.is/ til 1. apríl 2011.
Mennta- og menningarmálaráðuneytið biðst velvirðingar á öllum óþægindum sem kunna að fylgja þessari uppfærslu á Menntagátt.